Viðskipti erlent

Skoda jók hagnaðinn um 46%

Finnur Thorlacius skrifar
Vel gengur hjá Skoda þessa dagana.
Vel gengur hjá Skoda þessa dagana.
Tékkneski bílaframleiðandinn Skoda átti mjög gott ár í fyrra og seldi í fyrsta skipti yfir 1 milljón bíla á einu ári, reyndar eina 1.0370.000 bíla. Hagnaður fyrirtækisins nam 98 milljörðum króna og jókst hagnaðurinn mjög á milli ára, eða um 46%.

Stefna Skoda er að selja 1,5 milljónir bíla árið 2018 og stefnir strax í ár á umtalsverða aukningu. Upphaf ársins lofar góðu og fyrstu tveir mánuðirnir benda til þess að Skoda muni selja vel á árinu, þrátt fyrir að aðstæður séu víða erfiðar, svo sem í Rússlandi.

Í fyrra var söluaukning Skoda 12,7% og náði fáir evrópskir bílaframleiðendur viðlíka aukningu. Ef Skoda tekst aftur í ár ná samsvarandi aukningu mun sala Skoda í ár nema 1.170.000 bílum.

Sala Skoda bíla í Kína í fyrra nam 281.400 bílum og jókst salan um 24% þar. Skoda er í eigu Volkswagen bílafjölskyldunnar stóru sem inniheldur fjölmörg fólksbíla-, vörubíla- og mótorhjólamerki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×