Viðskipti erlent

Skiptir Tottenham um eiganda?

Finnur Thorlacius skrifar
Svona á White Hart Lane að líta út eftir stækkun.
Svona á White Hart Lane að líta út eftir stækkun.
Enska knattspyrnuliði Tottenham er að mestu í eigu Joe Lewis en hann hyggst samþykkja yfirtökutilboð frá bandaríska fjárfestingafélaginu Cain Hoy Enterprises á félaginu þrátt fyrir að fréttum þess efnis hafi verið neitað frá höfuðstöðvum knattspyrnufélagsins gamalgróna í London.

Í áætlunum Cain Hoy Enterprises er gert ráð fyrir stækkun heimavallar Tottenham sem taka á 56.000 áhorfendur, en White Hart Lane, heimavöllum liðsins tekur nú aðeins 36.000 manns í sæti.

Tottenham hefur ekki nálgast þær tekjur sem nágrannaliðin Arsenal og Chelsea afla með sína stóru keppnisvelli og þann leik hyggst fjárfestingasjóðurinn jafna með smíði vallar sem tilbúinn á að vera árið 2017. Það óttast núverandi eigandi Loe Lewis að sé ekki raunhæft.

Hann óttast að liðið gæti staðið uppi án heimavallar heilt tímabil vegna þeirra tafa sem orðið hafa á fjármögnun og hönnun vallarins og að hann verði ekki tilbúinn til notkunar keppnistímabilið 2017/2018 eins og til stendur. Þó hefur verið reifað að Tottenham gæti í millitíðinni notað ólympíuleikvanginn í London. Joe Lewis hefur átt Tottenham í 13 ár en hann keypti félagið af Alan Sugar árið 2001. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×