Innlent

Skipherrann á Tý: "Ein konan var komin alveg á steypirinn“

Gissur Sigurðsson skrifar
Halldór B. Nellett, skipherra á Tý.
Halldór B. Nellett, skipherra á Tý. Mynd/Landhelgisgæslan
Skipherrann á varðskipinu Tý segir að ítarleg og þaulæfð viðbragðsáætlun sé fyrir hendi um borð ef glæpamenn, sem stunda smygl á fólki á Miðjarðarhafi ætla að gerast of nærgöngulir. Þeir skutu viðvörunarskotum í fyrradag, til að endurheimta smyglbát, þegar búið var að bjarga fólkinu úr honum um borð í Tý og ítalskt skip.

Smyglararnir komu á vettvang á hraðskreiðum fullkomnum  báti , en þegar ítalska skipið gerði sig líklegt til að taka smyglbátinn í tog, fóru smyglararnir að skjóta viðvörunarskotum uns þeir fengu bátinn aftur.

Þegar þetta gerðist var Týr í aðeins einnar sjómílna fjarlægð þannig að áhöfnin heyrði skothvellina greinilega og fylgdist með  atburðarrásinni. Því vaknar sú spurning til Halldórs B. Nellett skipherra hvort herða þurfi öryggisviðbrögð um borð í ljósi þessa.

„Ég á nú ekki von á að það breytist neitt. Við vinnum eftir ákveðinni viðbúnaðaráætlun og verklagsreglum og æfum það reglulega. Það er heldur engin launung á því að við erum með vopn hér um borð og teljum okkur vera vel undir þetta búnir. Svo við förum ekkert að breyta neinu sem við erum búnir að margæfa hér í allan vetur.“

Þannig að þínir menn eru öruggir áfram?

„Já, ég held að það megi alveg segja það. Við erum vel búnir, hvort sem það eru vopn eða annað þannig að þetta er í sjálfu sér ekkert til að hafa stórar áhyggjur af,“ segir Halldór.

Týr er nú kominn til hafnar í Taranto á Ítalíu og voru 360 flóttamenn með í för sem áhöfnin bjargaði. Þeirra á meðal voru þrjár óléttar konur.

„Ein var alveg komin á steypirinn og ég var nú farinn að hafa áhyggjur af því að það myndi kannski fjölga í hópnum en hún er ekki enn búin að eiga og er komin í land.“


Tengdar fréttir

„Hvert rými setið“

Halldór B. Nellett, skipherra Týs, segir að 320 flóttamenn vera í það mesta sem komist um borð í varðskipið.

Týr úr einni björgun í aðra

Varðskipið Týr bjargaði í dag 342 flóttamönnum af litlum trébáti um 50 sjómílur norðvestur af Trípólí. Áhöfnin er nú farin í aðra björgunaraðgerð skammt frá.

Smyglarar skutu af byssum sínum í grennd við Tý á Miðjarðarhafi

Smyglarar sem sérhæfa sig í því að koma fólki yfir Miðjarðarhafið frá Líbíu og að Evrópuströndum skutu af byssum sínum og tóku bát í tog sem flóttafólki hafði skömmu áður verið bjargað úr. Týr, skip Landhelgisgæslunnar, var statt á svæðinu og hafði skömmu áður tekið þátt í björgun fólksins, að því er segir í tilkynningu frá Frontex, landamærastofnun Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×