Innlent

Skilur yfirlýsingar Sigmundar um fylgi Pírata

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Helgi Hrafn Gunnarsson Pírati segir að auðvitað þætti pólitískum andstæðingum það áhyggjuefni ef flokkurinn fengi 30-40 prósenta fylgi í kosningum.
Helgi Hrafn Gunnarsson Pírati segir að auðvitað þætti pólitískum andstæðingum það áhyggjuefni ef flokkurinn fengi 30-40 prósenta fylgi í kosningum. vísir/gva
Þingflokksformaður Pírata skilur að forsætisráðherra hræðist það að fylgi Pírata haldi sér. Hann segist ekki vita hvaða gildum yrði stefnt í hættu nái Píratar 30 til 40 prósenta fylgi, líkt og ráðherrann segir að muni gerast.



Allt önnur stefna hjá Pírötum

Sigmundur Davíð segir í viðtali við DV í dag að ef Píratar fengju 30 til 40 prósenta fylgi í kosningum þá myndi taka við allt annars konar stefna í samfélaginu þar sem erfitt gæti verið að viðhalda þeim gildum sem við höfum verið að sækjast eftir og byggja upp um áratuga skeið.



Hann segir það mikið áhyggjuefni fyrir samfélagið allt ef byltingarflokkar og flokkar með mjög óljósar hugmyndir um lýðræði og flokkar sem vilja umbylta grunnstoðum samfélagsins nái áhrifum. Hann telur það þó ekki muni gerast.

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingflokksformaður Pírata, segist ekki vita hvaða gildi Sigmundur talar um. „Hann talar þarna um einhver gildi sem Íslendingar eiga að hafa verið að byggja upp síðustu áratugi og mér finnst óljóst hvað hann eigi við með þeim en alla vega þau gildi sem við höfum lagt höfuðáherslu á eru lýðræðisumbætur,“ segir hann.



Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra telur engar líkur á að Píratar komist til valda. Það yrði mikið áhyggjuefni fyrir land og þjóð.vísir/vilhelm
Skilur yfirlýsinguna 

Helgi segist ekki vera sammála Sigmundi Davíð um að það sé áhyggjuefni fyrir samfélagið ef Píratar ná áhrifum en skilur þó að hann skuli segja það.



„Auðvitað þætti honum það áhyggjuefni og auðvitað þætti pólitískum andstæðingum okkur það áhyggjuefni og ég veit ekki hvers vegna hann ætti að segja eitthvað annað né hvernig ég ætti að svara því, ef ég segi alveg eins og er,“ segir hann.



Óvíst með fylgisþróunina

Sigmundur Davíð segir við DV að hann telji ekki líkur á að Píratar fái jafn mikið fylgi og þeir mælast með í skoðanakönnunum í næstu kosningum. Helgi Hrafn segir margt geti gerst á þeim tveimur árum sem eru til kosninga.



„Ég þori bara ekkert að segja um það ef ég á að segja alveg eins og er. Það eru tvö ár í kosningar og það er ýmislegt sem getur gerst á þeim tíma, vissulega. Ég meina, ég veit ekki frekar en hver annar hvernig fylgið muni þróast. Auðvitað kemur þetta öllum á óvart held ég, þar á meðal okkur, þannig að ég veit ekki hvað ég geti sagt með neinni vissu um það hvernig fylgið muni þróast næstu tvö ár,“ segir hann.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×