Erlent

Skelfilegt ástand í Aleppo: Tugir látist í loftárásum Sýrlandshers síðastliðinn sólarhring

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Björgunarmenn bera lík úr rústum húss í Aleppo í dag.
Björgunarmenn bera lík úr rústum húss í Aleppo í dag. vísir/getty
Bjarga verður áætlunum Bandaríkjamanna og Rússa um að binda enda á stríðið í Sýrlandi þar sem ekki séu aðrar leiðir færar. Þetta sagði Sergey Lavrov utanríkisráðherra í dag hjá Sameinuðu þjóðunum er hann ræddi stöðuna í Sýrlandi en Sýrlandsher hefur staðið fyrir linnulausum loftárásum á austurhluta borgarinnar Aleppo sem er á valdi uppreisnarhópa. Tugir hafa látist í loftárásunum í dag og eru margir efins um að friður sé í sjónmáli.

Rússar styðja stjórnvöld í Sýrlandi en Bandaríkjamenn hafa stutt við uppreisnarhópa í landinu sem vilja koma Bassar al-Assad Sýrlandsforseta frá völdum. Lavrov kenndi í dag Bandaríkjamönnum um að hafa ekki haft stjórn á uppreisnarhópunum og því hafi vopnahléinu sem samið var um í liðinni viku lokið á mánudaginn.

Lavrov sagði að lykilatriði í samningnum um vopnahlé hafi verið aðskilnaður hófsamari uppreisnarmanna, sem Bandaríkin styðja, frá öfgafyllri uppreisnarhópum. Bandaríkjunum hafi hins vegar ekki tekist að aðskilja hópana.

„Það er ákaflega mikilvægt að ekkert trufli viðræður okkar við Bandaríkin,“ sagði Lavrov.

John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna hitti Lavrov í dag og sagði hann að þeim hefði miðað smá áfram í viðræðum um hvernig stöðva má styrjöldina í Sýrlandi.

„Við erum að meta nokkrar hugmyndir á uppbyggilegan hátt,“ sagði Kerry.

Í umfjöllun BBC um málið kemur þó fram að lítil von sé til þess að samningar náist um vopnahlé og að ofbeldið í Sýrlandi hafi nú í vikunni farið algjörlega úr böndunum en eins og flestir vita var ástandið hræðilegt fyrir.

Á vef Guardian segir að að minnsta kosti 91 hafi látist í loftárásum Sýrlendinga og Rússa á Aleppo í dag. Í einni árásinni lést 15 manna fjölskylda sem leitað hafði skjóls í húsi fyrir Sýrlendinga sem hafa hrakist á flótta í eigin landi.

„Lifum við á öld tækninnar og siðmenningarinnar?“ spurði einn íbúi í Aleppo. „Er þetta rússneskt lýðræði og rússnesk siðmenning? Að drepa konur, börn og aldraða?“


Tengdar fréttir

Herja á Aleppo

Stjórnarher Sýrlands tilkynnir nýja sókn gegn uppreisnarmönnum í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×