Viðskipti innlent

Skagamenn kaupa Úrslit.net

Atli Ísleifsson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Vefsíðan hefur verið auglýst til sölu undanfarnar vikur.
Vefsíðan hefur verið auglýst til sölu undanfarnar vikur.
Úrslitaþjónustusíðan Úrslit.net sem starfrækt hefur verið undanfarin þrjú sumur hefur fengið nýja eigendur. Bræðurnir Arnar Daði Arnasson og Ragnar Miguel Herreos, stofnendur síðunnar, hafa selt hana þremur Skagastrákum. Nýir eigendur eru Snorri Kristleifsson, Björn Þór Björnsson og Jóhannes Þorkelsson.

„Þeir Arnar og Ragnar skila góðu búi. Þetta er umfangsmesta úrslitaþjónustan fyrir íslenska knattspyrnu og við ætlum okkur að halda áfram því góða starfi sem hefur verið sinnt af fyrrum eigendum í að koma úrslitum til skila.“

Vefurinn hefur undanfarin ár þjónað bæði fjölmiðlum og íþróttaáhugafólki þar sem það hefur getað fylgst með stöðunni í leikjum í svo til öllum deildum karla- og kvennafótbolta. Snorri segir að nýir eigendur ætli sér að þróa vefinn áfram.

„Við ætlum okkur að gera síðuna snjallsímavænni. Við stefnum á að þetta verði klárt í sumar, fyrir fyrstu umferðina í Pepsí-deildinni.“

Snorri vill ekkert gefa upp um kaupverð. „Ég ætla ekkert að tjá mig um það. Þetta var sanngjart verð fyrir báða aðila.“

Litla barnið okkar

„Þetta er búið að vera heljarinnar ævintýri,“ segir Arnar Darri í samtali við Vísi. Hann segir þá bræðurna vera búna að leggja mikla vinnu í vefinn undanfarin þrjú ár.

„Verkefni sem fáir höfðu trú á í fyrstu,“ sagði hann á Twitter fyrr í kvöld en gengur stoltur frá borði. Hann segir að vefurinn hafi tekið mikinn tíma frá sér og yfir sumartímann hafi hann verið vakinn og sofinn yfir vefnum.

Arnar Darri vill ekkert gefa uppi um kaupverðið en segir það þó ekki samanburðarhæft við þann tíma sem þeir bræður hafi lagt í vefinn undanfarin ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×