Körfubolti

Sjáðu tilþrifin og tilfinningaflóðið hjá LeBron þegar hann færði Cleveland NBA-titilinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
LeBron James missti sig alveg í leikslok.
LeBron James missti sig alveg í leikslok. Vísir/Getty
LeBron James tókst það að kom heim til Cleveland og færa liðinu NBA-meistaratitilinn í körfubolta í nótt eftir sigur á Golden State Warriors í leik sjö í úrslitaeinvíginu.

Frábær úrslitaleikur Cleveland Cavaliers og Golden State Warrios endaði á æsispennandi og dramatískum lokamínútum en fram að því höfðu liðin verða skiptast á því að ná forystunni.

LeBron James átti ótrúlegt úrslitaeinvígi sem var fullt af tilþrifum frá honum, bæði í sókn sem vörn. Kannski mun þá varða skotið hans á lokamínútunum þó vera þau tilþrif úr þessu einvígi sem mun lifa lengst í minni manna.

LeBron James varð þá skot frá Andre Iguodala sem virtist eiga auðvelt verkefni fyrir höndum að leggja boltann í körfuna í hraðaupphlaupi.

LeBron James gafst hinsvegar ekki upp ekki frekar en félagar hans í þessu úrslitaeinvígi þar sem Cleveland lenti 3-1 undir en kom til baka og vann 4-3 sigur.

Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá síðustu tvær mínútur leiksins og svo tilfinningaflóðið hjá LeBron James í leikslok. Þar sést Kyrie Irving meðal annars skora frábæra lokakörfu leiksins.

Baldur Beck og Kjartan Atli Kjartansson lýstu úrslitaleiknum á Stöð 2 Sport í nótt og að sjálfsögðu er lýsing þeirra undir þessu myndbandi.

Æsispennandi lokamínútur
NBA

Tengdar fréttir

LeBron átti forsíðurnar á öllum blöðunum í Ohio-ríki | Myndir

LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers tókst hið ómögulega í nótt þegar þeir kórónuðu endurkomu sína eftir að hafa lent 3-1 undir á móti ríkjandi NBA-meisturum Golden State Warriors og tryggðu Cleveland sinn fyrsta meistaratitil í 52 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×