Sjá gjaldtöku ekki sem lausn Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. febrúar 2012 13:44 Slysavarnarfélagið Landsbjörg sér gjaldtöku ekki sem lausn. mynd/ einar eysteinsson. „
Þetta er ekki lausn á málinu og við höfum ekki hugsað út í þetta á þennan hátt," segir Gunnar Stefánsson, sviðsstjóri björgunar- og slysavarnarsviðs hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg, um hugmyndir Ólínu Þorvarðardóttur vegna tryggingamála í tengslum við bíla sem sitja fastir í snjósköflum og ófæru. Fréttablaðið greinir frá því í dag að björgunarsveitir beri ábyrgð á skemmdum sem verða við þessar aðstæður. Sveitirnar þurfi að borga á annað hundrað þúsund krónur fyrir hvern bíl sem skemmist, ákveði eigandi bílsins að sækja rétt sinn til tryggingarfélagsins. Ólína Þorvarðardóttir, björgunarsveitamaður og alþingismaður, sagði í samtali við Vísi í dag að það væri ekki óeðlilegt að sá sem dregur annan bíl og er við stjórnina beri ábyrgð á því sem gerist. Aftur á móti þurfi Slysavarnafélagið Landsbjörg að fara að íhuga hvort skynsamlegt yrði að taka gjald fyrir þjónustu sem veitt er þegar bílar eru dregnir út úr snjósköflum og ófærum. Gunnar segir að Slysavarnarfélaginu Landsbjörg lítist ekkert á þetta og mesti viljinn standi bara til þess að vinna þessi mál í samstarfi við bílaeigendur og tryggingafélögin að finna lausn á þessu í sátt. Í Fréttablaðinu í dag er jafnframt bent á að Landsbjörg hafi ítrekað óskað eftir því við stjórnvöld og þingmenn að björgunarsveitirnar fái undanþágu í lögum svo tjón sem hér um ræðir falli ekki á sveitirnar ef þær eru við björgunarstörf. Slíkar hugmyndir munu þó ekki hafa náð inn í þingnefndir, hvað þá lengra.
Tengdar fréttir Hugsanlegt að björgunarsveitir taki gjald fyrir aðstoð í ófærð Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður og björgunarsveitamaður segir að Slysavarnafélagið Landsbjörg verði að fara að íhuga hvort skynsamlegt yrði að taka gjald fyrir þjónustu sem veitt er þegar bílar eru dregnir út úr snjósköflum og ófærum. Fréttablaðið greinir frá því í dag að björgunarsveitir beri ábyrgð á skemmdum sem verða við þessar aðstæður. Sveitirnar þurfi að borga á annað hundrað þúsund krónur fyrir hvern bíl sem skemmist, ákveði eigandi bílsins að sækja rétt sinn til tryggingarfélagsins. 6. febrúar 2012 11:02 Dýrt að valda tjóni við björgun Björgunarsveitir bera ábyrgð á skemmdum sem verða á bílum sem draga þarf úr snjósköflum og ófærum. Sveitirnar þurfa að borga á annað hundrað þúsund krónur fyrir hvern bíl sem skemmist, ákveði eigandi bílsins að sækja rétt sinn til tryggingarfélagsins. 6. febrúar 2012 04:00 Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Fleiri fréttir Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Sjá meira
Hugsanlegt að björgunarsveitir taki gjald fyrir aðstoð í ófærð Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður og björgunarsveitamaður segir að Slysavarnafélagið Landsbjörg verði að fara að íhuga hvort skynsamlegt yrði að taka gjald fyrir þjónustu sem veitt er þegar bílar eru dregnir út úr snjósköflum og ófærum. Fréttablaðið greinir frá því í dag að björgunarsveitir beri ábyrgð á skemmdum sem verða við þessar aðstæður. Sveitirnar þurfi að borga á annað hundrað þúsund krónur fyrir hvern bíl sem skemmist, ákveði eigandi bílsins að sækja rétt sinn til tryggingarfélagsins. 6. febrúar 2012 11:02
Dýrt að valda tjóni við björgun Björgunarsveitir bera ábyrgð á skemmdum sem verða á bílum sem draga þarf úr snjósköflum og ófærum. Sveitirnar þurfa að borga á annað hundrað þúsund krónur fyrir hvern bíl sem skemmist, ákveði eigandi bílsins að sækja rétt sinn til tryggingarfélagsins. 6. febrúar 2012 04:00