Viðskipti erlent

Sekt lækkar hlutabréf

Sæunn Gísladóttir skrifar
Hlutabréf í London tóku dýfu í vikunni.
Hlutabréf í London tóku dýfu í vikunni. Fréttablaðið/Getty
Á föstudaginn hrundu hlutabréf í Deutsche Bank og lækkaði gengi hlutabréfanna um rúmlega átta prósent. Þetta leiddi til verulegrar lækkunar á evrópskum hlutabréfamarkaði og lauk vikunni með mestu lækkunum á evrópskum hlutabréfamörkuðum frá því að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið í lok júní.

Ástæða lækkunarinnar hjá Deutsche Bank er að tilkynnt var um það á föstudaginn að bandaríska ríkið vill að bankinn greiði 14 milljarða dollara, jafnvirði 1.600 milljarða króna, í sekt vegna þáttar síns í fjármálakreppunni árið 2008.

Eins og Fréttablaðið greindi frá hefur órói komið yfir markaði á ný. Á föstudaginn fyrir rúmri viku fór stressvísitalan að hækka á ný og voru miklar lækkanir á hlutabréfamarkaði í byrjun síðustu viku úti um allan heim.

Í vikunni lækkaði STOXX Europe 600 vísitalan, sem nær til stærstu hlutabréfa í Evrópu, um 3,5 prósent. Stærstu hlutabréfavísitölur Evrópu tóku dýfu í vikunni, má þar nefna FTSE 100 í Bretlandi, sem náði sér á strik en endaði í -1 prósenti fyrir vikuna, og svipaða sögu er að segja af DAX í Þýskalandi.

Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×