Viðskipti innlent

Segist ná hagstæðum kjörum með útboði

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Fjórir söluaðilar á rafmagni svöruðu kalli Hafnarfjarðar.
Fjórir söluaðilar á rafmagni svöruðu kalli Hafnarfjarðar. Vísir/Valli
Eftir útboð hefur bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkt að leita eftir samningum um kaup á rafmagni frá Orkusölunni. Umhverfis- og framkvæmdaráð bæjarins hefur falið umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðar að leita samninga.

Bærinn fól EFLU verkfræðistofu að hafa umsjón með útboði á raforkukaupum bæjarins. Það var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og var sérstaklega sent seljendum raforku.

Tilboð barst frá fjórum fyrirtækjum og var Orka náttúrunnar með lægsta boð. HS orka skilaði inn tilboði sem var sex prósentum hærra en tilboð Orkusölunnar. Orka náttúrunnar skilaði inn 16 prósentum hærra tilboði og Fallorka 19 prósentum hærra.

Í niðurstöðu EFLU kemur fram að lægsta tilboð sé fjórðungi lægra en útgefnir orkutaxtar og mat stofunnar sé að tilboðið sé hagstæðara en önnur tilboð sem bænum bárust. Ef horft er til samningsins sem Hafnarfjarðarkaupstaður hefur við Fallorku í dag og þau verð sem gilda í dag er þetta um það bil fimm prósenta hækkun á heildarkostnaði vegna raforkukaupa, segir í niðurstöðunni.





Guðlaugur Þór Þórðarsonvísir/vilhelm
Félag atvinnurekenda hefur bent á að hægt sé að spara opinbert fjármagn með virkari útboðum af hálfu hins opinbera. FA stóð fyrir fundi um málefnið síðasta þriðjudag. Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, var á meðal frummælenda en hann telur að fjölmörg vannýtt tækifæru séu í því að halda opin útboð. Fjárlaganefnd tók saman upplýsingar um útboð hjá stofnunum og fyrirtækjum ríkisins.

„Við tókum fyrir allt það sem ætti að vera algjörlega einfalt. Til dæmis raforku sem maður skyldi ætla að væri einfaldasta mál í heimi að bjóða út,“ sagði Guðlaugur Þór á fundinum. Af 160 stofnunum hins opinbera hafi hins vegar bara 7,5 prósent boðið út rafmagnið og 50 prósent boðið út innkaup.

Hann sagði að ýmsar stofnanir væru ekki tilbúnar að spara með útboðum. „Stofnanir sem bjóða ekki út hljóta að hafa of mikið á milli handanna og þarf þá að skera sérstaklega niður hjá þeim,“ sagði Guðlaugur.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 23.maí






Fleiri fréttir

Sjá meira


×