Viðskipti innlent

Sala jókst um fimm prósent hjá Össuri

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jón Sigurðsson forstjóri er sáttur við niðurstöðuna.
Jón Sigurðsson forstjóri er sáttur við niðurstöðuna. vísir/ valli.
„Niðurstöður ársfjórðungsins eru í takt við okkar væntingar. Þrátt fyrir óhagstæð gengisáhrif er rekstrarárangurinn og afkoman góð,‟ segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, um rekstarniðurstöðu fyrsta ársfjórðungs. Niðurstaðan var birt í Kauphöll Íslands nú í kvöld.

Sala nam 114 milljónum Bandaríkjadala (15,2 milljarðar íslenskra króna) sem er aukning um 5% frá fyrra ári, þar af 4% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt. EBITDA jókst um 3% og nam 21 milljón Bandaríkjadala (2,8 milljarðar íslenskra króna) sem er 18% af sölu, samanborið við 17% af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2014. Hagnaður dróst saman um 21% milli ára og nam 9 milljónum Bandaríkjadala (1,2 milljarðar íslenskra króna) eða 8% af sölu, samanborið við 9% af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2014.

Arðgreiðslur sem námu DKK 0.12 á hlut voru greiddar út í lok mars 2015. Þá var lækkun á eigin fé félagsins um 7,456,755 hluti skráð um miðjan apríl 2015. Rekstraráætlun fyrir árið 2015 gerir ráð fyrir 3-5% innri vexti og EBITDA framlegð á bilinu 20-21%

Jón Sigurðsson segir að sala á stoðtækjum sé mjög góð á öllum helstu mörkuðum og í helstu vöruflokkum og sala á spelkum og stuðningsvörum í takt við væntingar. „Við höfum haldið áfram að leggja aukna áherslu á bætta arðsemi, sem þýðir að við höfum aukið áherslu á hágæðavörur og vörunýjungar sem eiga þátt í jákvæðum niðurstöðum á þessum ársfjórðungi,‟ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×