Golf

Russell Henley í forystu eftir fyrsta hring á Hawaii

Henley var sjóðandi heitur á fyrsta hring.
Henley var sjóðandi heitur á fyrsta hring. AP
Bandaríkjamaðurinn Russell Henley leiðir eftir fyrsta hring á Hyundai Tournament of Champions sem fram fer á Kapalua vellinum á Hawaii. Henley lék gallalaust golf í gær, púttaði eins og engill og fékk ekki einn einasta skolla en hann lék á 65 höggum eða átta undir pari.

Þá virðist vera lítið fararsnið á Suður-Kóreumanninum Sang-Moon Bae en fyrir stuttu greindum við frá því að yfirvöld í heimalandi hans ætluðu að kalla hann heim til þess að sinna herskyldu. Hann virðist ekki vera til í að skipta vélbyssu út fyrir golfkylfurnar alveg strax en hann lék mjög vel á fyrsta hring og er einn í öðru sæti á sjö höggum undir pari.

Fimm kylfingar deila þriðja sætinu á sex höggum undir pari en meðal þeirra eru Jimmy Walker og ungstirnið Patrick Reed.  

Sigurvegari síðasta árs, Zach Johnson, lék fyrsta hring á fimm höggum undir pari en hann situr í áttunda sæti eins og er.

Aðeins þeir kylfingar sem sigruðu í móti á PGA-mótaröðinni á síðasta ári hafa þátttökurétt á Hawaii en það sést greinilega á skorinu sem var almennt mjög gott á fyrsta hring. Bein útsending frá öðrum hring hefst á Golfstöðinni klukkan 18:00 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×