Viðskipti innlent

Rekstrarhagnaður Advania var einn milljarður og jókst um 60 prósent

Hörður Ægisson skrifar
Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, segir mun hærra hlutfall af tekjum félagsins komi nú af þjónustu fremur en vörusölu.
Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, segir mun hærra hlutfall af tekjum félagsins komi nú af þjónustu fremur en vörusölu.
Upplýsingatæknifyrirtækið Advania á Íslandi skilaði í fyrra sinni bestu rekstrarafkomu frá upphafi en EBITDA-hagnaður félagsins - afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta - nam þá rúmlega einum milljarði króna og jókst um 63 prósent frá fyrra ári.  

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að heildartekjur Advania hafi aukist um 7 prósent á milli ára og voru samtals 11.455 milljónir króna í fyrra. Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, segir að árangurinn sem náðst hafi megi rekja til nokkurra þátta.

„Í fyrsta lagi hefur eftirspurn eftir vörum og þjónustu fyrirtækisins aukist mikið. Það er eiginlega sama hvert er litið, til hýsingar, rekstrar, uppfærslu fjárhags- og mannauðskerfa eða hugbúnaðarþróunar, alls staðar er aukin eftirspurn. Í öðru lagi höfum við einfaldað vöruframboð okkar þannig að mun hærra hlutfall af tekjum okkar kemur nú af þjónustu fremur en vörusölu. Í þriðja lagi þá höfum við á að skipa ótrúlega flottum hópi starfsmanna sem hefur lagt mikið á sig við að auka skilvirkni og bæta þjónustu við viðskiptavini,“ segir Ægir.

Árið 2016 bvar fyrsta heila árið sem Advania á Íslandi var rekið sem sjálfstætt dótturfélag Advania Norden en það er einnig með starfsemi í Noregi og Svíþjóð. 

„Með því að reka Advania á Íslandi sem sjálfstætt dótturfélag skerptum við á áherslum fyrir íslenskan markað til að tryggja viðskiptavinum okkar hér þjónustu sem væri sérsniðin að þeirra þörfum,“ segir Ægir Már. „Við höfum gengið í gegnum miklar breytingar á undanförnum árum sem starfsfólk okkar hefur tekist á við með afbragðsgóðum árangri,“ segir Ægir Már.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×