Viðskipti erlent

Raftækjarisar sektaðir um 21 milljarð vegna verðsamráðs

Finnur Thorlacius skrifar
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sektaði fyrirtækin þrjú.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sektaði fyrirtækin þrjú.
Stóru raftækjaframleiðendurnir Samsung, Philips og þýski hálfleiðaraframleiðandinn Infineon hafa verið sektaðir um samtals 21,3 milljarða króna vegna verðsamráðs með hálfleiðara sem notaðir eru í raftæki.

Samráð þetta á að hafa átt sér stað á árunum 2003 til 2005. Það er framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem sektað hefur fyrirtækin vegna starfsemi þeirra á markaði í Evrópu. Infineon fékk hæstu sektina, 12,8 milljarða, Samsung 5,4 milljarða og Philips 3,1 milljarð króna. Infineon og Philips ætla að áfrýja úrskurðinum og segja ekkert hæft í þeim ásökunum sem á fyrirtækin eru borin.

Samsung hefur ekki ákveðið hvort fyrirtækið muni gera slíkt hið sama. Í júní á þessu ári fékk Intel, sem einnig framleiðir hálfleiðara, risasekt uppá 170 milljarða króna fyrir samskonar sakir eftir að hafa áfrýjað samskonar ásökunum, en Intel tapaði málinu fyrir dómi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×