Innlent

Rafmagnstruflanir víða í óveðrinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Við gatnamót Langholtsvegar og Holtavegar fyrr í kvöld.
Við gatnamót Langholtsvegar og Holtavegar fyrr í kvöld. Vísir/Aðalsteinn
Íbúar hafa víða orðið varir við rafmagnstruflanir í kvöld í óveðrinu sem nú geysar á Suðurlandi, Suðurnesjum, Suðvesturlandi og Vesturlandi.  

Rafmagnslaust varð til að mynda í Vogahverfi, þar sem blaðamaður Vísis tók meðfylgjandi mynd, í Háaleitishverfi og í hluta Hlíðahverfis.

Rafmagn er nú komið aftur á en í frétt á vef RÚV er haft eftir Eiríki Hjálmarssyni, upplýsingafulltrúa Orkuveitunnnar, að rafmagn hafi aðeins farið af í um 6 mínútur.

Þá hafa rafmagnstruflanir einnig hrjáð íbúa Álftaness í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×