Viðskipti innlent

QuizUp rakleiðis á toppinn í Kína

Samúel Karl Ólason skrifar
Einungis nokkrum klukkustundum eftir að leikurinn QuizUp varð aðgengilegur í Kína varð hann vinsælastur í appstore þar í landi. Leikurinn er framleiddur af íslenska fyrirtækinu Plain Vanilla. Viðtökurnar gefa tekjumöguleikum fyrirtækisins byr undir báða vængi.

Þorsteinn Baldur Friðriksson, stofnandi Plain Vanilla segir viðtökurnar vera gleðilega enda sé markaðurinn sá allra stærsti sem fyrirtækið hafi farið inn á.

„Undirbúningurinn að útgáfu leiksins hefur verið langur enda snerist þetta ekki aðeins um að breyta tungumálinu eins og við höfum gert þegar við sækjum á nýja markaði, heldur þurftum við nánast að hanna leikinn upp á nýtt. Það virðist hafa heppnast þokkalega miðað við þessar frábæru viðtökur. Kína er einn þróaðasti leikja- og appmarkaður í heimi og það er mjög flott að stökkva beint í toppsætið þar á fyrsta degi útgáfunnar.“

Í tilkynningu segir að töluverðar breytingar hafi verið gerðar á leiknum áður en hann var gefinn út í Kína. Þar heitir leikurinn til dæmis WeQuiz. Leikurinn er gefinn út í samstarfi við leikjarisann Tencent, sem rekur einnig vinsælasta samfélagsmiðilinn í Kína, WeChat. Hvorki Twitter, Instagram né Facebook eru aðgengileg í Kína.

 Meðal breytinga sem gerðar voru eru að notendum í Kína stendur til boða að kaupa tómata inn í leiknum til að henda á skjá andstæðingsins.

Áður en leikurinn var gefinn út þar í landi hafði hann verið sóttur af 35 milljón notendum víða um heim og undanfarið hafa bæst við á milli 30 og 40 þúsund nýir notendur á dag. Ljóst er að notendunum mun fjölga enn hraðar á næstu dögum en heildarmannfjöldi í Kína er 1.400 milljónir.


Tengdar fréttir

Fékk vægt menningarsjokk við opnun Quiz-Up í Kína

Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi og forstjóri Plain Vanilla sem gefur út Quiz-Up sagði í Klinkinu í Íslandi í dag á Stöð 2 að það hafi verið hálfgert menningarsjokk að fara til Kína að vinna að útgáfu leiksins þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×