Viðskipti innlent

QuizUp er orðinn samfélagsmiðill

Ingvar Haraldsson og Jóhann Óli Eiðsson skrifa
Plain Vanilla sendi í dag frá sér uppfærslu á leiknum QuizUp. Uppfærslunnar hefur verið beðið í talsverðan tíma enda boðaði hún talsverðar breytingar á leiknum sem nú er orðinn bæði spurningaleikur og samfélagsmiðill.

Leikurinn kom upphaflega á markað í lok árs 2013 og skaust honum hratt upp á stjörnuhimininn. Notendur leiksins eru nú um 33 milljónir og fjölgar á degi hverjum. Um sjö milljónir leikja eru spilaðir daglega og meðalnotandinn ver  tæplega hálftíma á dag í leiknum.

Í viðtali við Harmageddon fyrir áramót sagði Þorsteinn Friðriksson, forstjóri og stofnandi Plain Vanilla, að fyrirtækinu hefðu borist bréf og skeyti þar sem fólk utan úr heimi þakkaði fyrirtækinu fyrir leikinn þar sem það hefði kynnst góðum vinum eða jafnvel maka sínum gegnum leikinn.

Hér má sjá notanda samfélagsmiðilsins furða sig á hinu nýja umhverfi QuizUp.mynd/quizup
Nýja uppfærslan ætti að gera slíkt auðveldara þar sem leiknum svipar nú mun meira til samskiptaforrits. Þú getur séð hverju aðrir leikmenn hafa áhuga á, hvernig þeim vegnar og hvað þeir hafa að segja um hin ýmsu málefni. Þar getur þú síðan skilið eftir ummæli eða líkað við hluti að vild.

Þú getur bæði fylgst með fólki og flokkum sem þú hefur áhuga á að spila. Þannig geturðu bæði séð stöðuuppfærslur hjá fólki almennt sem og hluti sem það skilur eftir sig á hinum ýmsu flokkum sem í boði eru.

Hægt að spila Quizup í gegnum vafra

Önnur nýjung er að nú er hægt að spila QuizUp í gegnum vafra en ekki aðeins í gegnum snjalltæki. Það er hægt að gera með því að fara á QuizUp.com og skrá sig inn á sinn notanda með lykilorði eða í gegnum Facebook.

Hér að neðan má sjá viðtal sem vefurinn TechCrunch tók við Þorstein Friðriksson um nýju uppfærsluna.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×