Viðskipti innlent

Pundið ekki lægra í 31 ár

Sæunn Gísladóttir skrifar
Eftir að niðurstaða Brexit-kosninganna lág fyrir hefur gengi Sterlingspunds lækkað um tólf prósent.
Eftir að niðurstaða Brexit-kosninganna lág fyrir hefur gengi Sterlingspunds lækkað um tólf prósent. Fréttablaðið/EPA
Gengi sterlingspunds hefur hrunið síðan að niðurstöður Brexit-kosninganna lágu fyrir og ljóst var að Bretland hyggst yfirgefa Evrópusambandið.

Þóra Helgadóttir, hagfræðingur í London, býst við áframhaldandi sveiflum og frekari lækkunum ef pólitískur óstöðugleiki heldur áfram. Sérfræðingur í greiningardeild Arion banka segir líklegra að breskir ferðamenn muni neyta minna hér á landi í ferðum sínum en að hætta við að koma.

Gengi Sterlingspunds gagnvart Bandaríkjadal var 1,32 í gær og hefur ekki verið lægra í 31 ár. Gengi pundsins gagnvart íslensku krónunni er 165 krónur og hefur lækkað um tæp tíu prósent síðastliðinn mánuð.

„Óvissan er mikil og pólitískur óstöðugleiki er ekki að bæta aðstæður. Markaðir munu halda áfram að sveiflast við fréttir um áframhaldið," segir Þóra Helgadóttir sem einnig situr í fjármálaráði Alþingis.

Konráð S. Guðjónsson, sérfræðingur hjá Arion banka.
Konráð S. Guðjónsson, sérfræðingur í greiningardeild Arion banka, segir erfitt að meta það hvort gengi pundsins muni halda áfram að lækka. „Það er ekkert sem getur þannig séð stöðvað lækkunina ef allt fer á versta veg, en þetta fer rosalega mikið eftir viðbrögðum breskra stjórnvalda um næstu skref og viðbrögð ESB."

Konráð segir áhrifin á Íslandi vera fyrst og fremst að kaupmáttur Breta minnkar, bæði þeirra sem kaupa fisk og ferðast til Íslands. Gengið hefur meiri áhrif á hversu mikið fólk neytir og dvalartíma þeirra, en hefur minni áhrif á það hvort fólk komi til landsins eða ekki," segir Konráð S. Guðjónsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×