Formúla 1

Prost vann fyrri keppnina í London

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nicolas Prost vann fyrri umferð helgarinnar í Formúlu E í London.
Nicolas Prost vann fyrri umferð helgarinnar í Formúlu E í London. Vísir/FormulaE
Nicolas Prost á Renault e.dams var á ráspól ogvann keppnina en athyglin var annarsstaðar. Lucas di Grassi og Sebastien Buemi voru í harðri baráttu um heimsmeistaratitil ökumanna.

Lokakeppnin á tímabilinu í Formúlu E fer fram í London á morgun. Bilið á milli di Grassi og Buemi er 3 stig di Grassi í vil. Baráttan verður hörð aftur á morgun.

Daniel Abt, liðsfélagi di Grassi hjá ABT Audi var á milli þeirra Buemi í áttunda sæti eftir örfáa hringi. Abt hóf að verjast af hörku og fékk viðvörun fyrir vikið. Hann varðist vel og veitti di Grassi þar með tækifæri til að komast fram úr heimamanninum, Sam Bird á Virgin bílnum. Þar með voru komnir tveir bílar á milli di Grassi í sjotta sæti og Buemi í níunda.

Buemi tóskt svo að vinna sig upp listann og var næstur á eftir di Grassi. Þeir komu svo saman inn á þjónustusvæðið á hring 17 af 33 til að skipta um bíl. Engin breyting varð þó á stöðu þeirra í þjónustuhléinu.

Öryggisbíllinn var kallaður út þegar Abt og Robert Frinjs lentu í samstuði á hring 21. Á sama tíma fór að rigna á einum kafla brautarinnar.

Vergne, di Grassi og Buemi lentu í léttu samstuði þegar 6 hringir voru eftir. Hluti af framvæng di Grassi brotnaði af. Buemi reyndi að nota „fan boost“ til að taka fram úr di Grassi en það dugði ekki til. Di Grassi svaraði með því að setja hraðasta hring.

Bird blandaði sér í baráttu di Grassi og Buemi með því að stinga sér inn á milli þeirra með því að taka fram úr Buemi.

Bird kláraði orkuna og missti Buemi fram úr sér á lokametrunum. Spennan er því mikil fyrir lokakeppnina á morgun. Munurinn á milli tveggja efstu manna gæti vart verið minni, þrjú stig skilja di Grassi og Buemi að.

Bein útsending frá keppninni á morgun hefst klukkan 14:30 á morgun á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton á ráspól í Austurríki

Lewis Hamilton var fljótastur á Mercedes í tímatökunni fyrir austurríska kappaksturinn. Annar varð Nico Rosberg og Nico Hulkenberg varð þriðji á Force India.

Massa horfir til Formúlu E og þolkappaksturs

Felipe Massa segir að hann myndi horfa til þess að ná í sæti í Formúlu E bíl eða WEC, heimsmeistarakeppninnar í þolakstri ef hann hefði ekki samkeppnishæft sæti í Formúlu 1.

Lucas di Grassi vann á Long Beach

Lucas di Grassi á ABT vann Formúlu E kappaksturinn sem fram fór á Long Beach. Di Grassi ræsti annar af stað.

Lucas di Grassi fyrstur í mark í París

Lucas di Grassi á ABT kom fyrstur í mark í Formúlu E kappakstrinum í París. Jean-Eric Vergne varð annar á DS Virgin bílum og Sebastian Buemi varð þriðji á Renault e.dams.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×