Körfubolti

Pavel: Yrði alveg sáttur með að þetta yrði síðasti leikurinn minn á ferlinum

Óskar Ófeigur Jónsson í London skrifar
Pavel í leik Íslands og Bretlands á dögunum.
Pavel í leik Íslands og Bretlands á dögunum. Vísir/Vilhelm
Pavel Ermolinskij hvíldi í leiknum í Bosníu eftir að hafa gefið 14 stoðsendingar í sigrinum á Bretum.

Hann verður með íslenska liðinu í London í kvöld í leiknum mikilvæga á móti Bretlandi þar sem sigur tryggir íslenska liðinu annað sætið í riðlinum og svo gott sem sæti á Evrópumótinu í körfubolta.

„Staðan á mér er bara ágæt. Hún var slæm eftir fyrri Englandsleikinn og við ákváðum bara að ég myndi hvíla Bosníuleikinn vegna þess að það var stutt frí þarna á milli. Þetta er mikilvægari leikur," sagði Pavel Ermolinskij sem ætlar að gefa allt í þetta í kvöld.

„Ég er klár. Ég er ekkert lítill í mér og ef að þetta er síðasti leikurinn minn á ferlinum þá er ég bara sáttur með það því þeir gerast ekki stærri," sagði Pavel. En var ekki erfitt að missa af síðasta leik á bekknum?

„Það var mjög erfitt og sérstaklega eftir að maður var kominn í húsið og sá þessa stemningu. Strákarnir stóðu sig síðan frábærlega og mér langaði að vera hluti af því. Ég reyni stundum að vera skynsamur og þarna fékk skynsemin en ekki hjartað að ráða," sagði Pavel en býst hann við öðruvísi leik en þegar liðið vann Bretana með 13 stigum í Höllinni.

„Vonandi verður þetta bara eins leikur og í Höllinni. Það getur vel verið að þeir breyti einhverju hjá sér. Við munum náttúrulega breyta hjá okkur því við fengum einhvern gamlan ref inn. Vonandi getur hann gert eitthvað en við ætlum annar að halda áfram að gera það sama," sagði Pavel um endurkomu Jóns Arnórs Stefánssonar í íslenska liðið.

„Það er hundleiðinlegt að spila á móti okkur því við erum litlir og leiðinlegir. Við ætlum bara að halda því áfram," sagði Pavel og EM-sæti er hugsanlega í húfi í kvöld.

„Það er ótrúlega mikið í húfi og það er bara gaman. Það er ekki oft sem við í landsliðinu höfum spilað leiki þar sem það er bara undir okkur komið að gera stóra hluti. Við erum ekki alveg að ná þessu ennþá sem er bara fínt svo við förum ekki að setja einhverja óþarfa pressu á okkur. Við verðum bara að vera meðvitaðir um þetta og spila síðan bara okkar leik," sagði Pavel.

„Við megum ekki byrja að spila eitthvað öðruvísi af því að þetta er mikilvægur leikur. Við spilum bara okkar bolta eins og við höfum alltaf gert," sagði Pavel að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×