Veður

Veður


Fréttamynd

Enn að heiman

Hjálmar Sigurðsson ábúandi á Hrauni í Hnífsdal og fjölskylda hans hafa ekki geta dvalið heima hjá sér síðan að snjóflóð féll á bæ þeirra í síðustu viku. Stór hluti af bænum eyðilagðist í flóðinu, en beðið er eftir efni sem pantað hefur verið til viðgerðar.

Innlent
Fréttamynd

Rúmlega 100 manns rýmdu hús sín

Lokið er rýmingu húsa sem ákveðnar hafa verið á Vestfjörðum. Alls hafa 103 íbúar í 37 húsum þurft að yfirgefa heimili sín í dag vegna snjóflóðahættu.  49 á Patreksfirði, 23 á Ísafirði, Hnífsdal og í dreifbýli Ísafjarðarbæjar og 31 á Bolungarvík og tveimur bæjum þar við. Almannavarnir munu fylgjast grannt með þróun mála í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Yfir hundrað íbúa rýmdu hús sín

Fimmtíu íbúar úr fimmtán húsum við Urðarstíg, Mýrar og Hóla á Patreksfirði þurftu að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu og leituðu íbúar til ættingja og vina í bænum. Í Bolungarvík voru sjö hús rýmd auk eins sveitabæjar og fimmtán hús voru rýmd í Ísafjarðarbæ.

Innlent
Fréttamynd

Hættan metin úr fjarska

Snjóflóðavakt hefur verið á Veðurstofunni í Reykjavík síðan snemma í gærmorgun, og helst er fylgst með Vestfjörðum þar sem ekki hefur verið svona mikill snjór í fjöllum síðan 1995. 

Innlent
Fréttamynd

Ótti um snjóflóð

53 íbúar í Bolungarvík og Ísafjarðarbæ gátu ekki sofið í rúmum sínum í nótt vegna snjóflóðahættu. Alls voru rýmd 28 hús, bæði íbúðarhús og vinnustaðir. Þá voru vegir víða lokaðir eða takmarkanir settar á umferð vegna snjóflóðahættu úr bröttum hlíðum. Hættumat verður endurmetið nú strax í morgunsárið.

Innlent
Fréttamynd

Ófært í fjárhús vegna snjóflóðs

Björgunarsveitin Kópur á Bíldudal þurfti að aðstoða fjáreiganda inni í Auðahringsdal við að gefa sauðfé sínu í gær, þar sem snjóflóð hafði fallið á veginn heim að bænum, svo þangað var ófært.

Innlent
Fréttamynd

Hálka víðast hvar um landið

Hálka er suðvestanlands og éljagangur og snjóþekja á Vesturlandi. Þungfært er á Holtavörðuheiði og mjög slæmt veður. Á Norðurlandi er víða hálka og éljagangur.

Innlent
Fréttamynd

Kostnaðarsamur mokstur á Akureyri

Talsvert fannfergi er nú á Akureyri og er kostnaður bæjarfélagsins við snjómokstur ærinn. Það má áætla að hann kosti bæjarbúa árlega um 40 milljónir króna samkvæmt fréttavef Akureyrar en árið 2004 nam kostnaðurinn um eða yfir 48 milljónum.

Innlent
Fréttamynd

Hálka og þung færð víða

Hálka og þung færð er víða. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er snjóþekja og snjókoma suðvestanlands og á Vesturlandi. Það er hálka á Holtavörðuheiði og á Norðurlandi og hálka og éljagangur er á Vestfjörðum. Kleifaheiði er þungfær og þæfingur á Hálfdáni.

Innlent
Fréttamynd

Allir gerðu miklu meira en þeir gátu

Sigríður Hrönn Elíasdóttir var sveitarstjóri í Súðavík þegar snjóflóðin féllu 1995. Áður hafði hún, í samráði við sýslumann og sérfræðinga Veðurstofunnar, látið rýma nokkur hús í þorpinu enda vofði snjóflóðahættan yfir. Það dugði ekki til. Flóðið féll annars staðar en reiknað var með og varð stærra og ógurlegra en áður hafði sést í Álftafirði. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Tíminn læknar ekki öll sár

Súðvíkingurinn Ómar Már Jónsson hefur verið sveitarstjóri Súðavíkurhrepps í rúm tvö ár. Hann var skipverji á Bessanum þegar flóðin féllu fyrir áratug. Ómar er bjartsýnn á framtíð Súðavíkur og segir stemninguna einstaka, sérstaklega yfir sumartímann, þegar íbúafjöldinn margfaldast. Gamla byggðin iðar þá af lífi og fjöri.

Innlent
Fréttamynd

Og fjallið það öskrar

Það var dimmt yfir Álftafirði fyrri part viku. Kalt í veðri og strekkingsvindur. Alhvítur snjórinn hafði ekki aðeins lagst af þunga yfir byggðina heldur líka á sálir fólksins. Það minntist hamfaranna ógurlegu 1995. Hafði ekki séð annan eins snjó síðan þá.

Innlent
Fréttamynd

Flughálka í uppsveitum Árnessýslu

Flughálka er víða í uppsveitum Árnessýslu. Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og snjóþekja og éljagangur á Vatnsskarði. Hálka er á Öxnadalsheiði og snjóþekja á Mývatnsheiði, Mývatnsöræfum og Fjarðarheiði. Verið er að moka Vatnsskarð eystra og Breiðdalsheiði. Öxi er ófær.

Innlent
Fréttamynd

Eðlilegt að spár breytist

"Veðurspáin fyrir illviðrið í Skandinavíu stóðst ótrúlega vel og allar viðvaranir í sambandi við það voru góðar. Mér finnst það ekki frétt þó að þriggja daga spáin hafi ekki skilað sér," segir Magnús Jónsson veðurstofustjóri og segir spár oft breytast ótrúlega mikið frá degi til dags.

Innlent
Fréttamynd

Helstu þjóðvegir færir

Allir helstu þjóðvegir landsins eru færir. Nokkur snjókoma eða éljagangur er á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og á Norðurlandi vestra. Hálka er á vegum um allt land og flughálka í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslu.

Innlent
Fréttamynd

Þriggja daga spáin var vitlaus

Þriggja daga veðurspá fyrir Norðurlöndin, áður en óveðrið mikla skall á fyrir rúmri viku, var arfavitlaus. Veðurskilyrðin suðvestur af Íslandi voru önnur en komu fram á reiknilíkani Evrópsku veðurstofunnar, sem staðsett er í Englandi.

Innlent
Fréttamynd

Fok víða um land

Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í Grindavík í nótt til að hemja fok af þaki fjárhúss í svonefndu Bakkalá fjárhúsahverfi. Þeir náðu að hefta frekara fok, eftir því sem best er vitað, og mun enga kind hafa sakað.

Innlent
Fréttamynd

Hættustigi aflýst á Patreksfirði

Aflýst hefur verið hættustigi vegna snjóflóðahættu við Urðargötu á Patreksfirði og er íbúum sem þurftu að rýma heimili sín í morgun heimilt að fara heim á ný. Snjóeftirliti verður þó haldið áfram og fylgst grannt með snjóalögum.

Innlent
Fréttamynd

Snjóflóðahætta á Patreksfirði

Sex íbúðarhús voru rýmd á Patreksfirði nú fyrir hádegið vegna snjóflóðahættu en flóð féll úr hlíðinni fyrir ofan bæinn í morgun og niður á götuna Mýrar. Engin hús eða mannvirki eru þar sem flóðið féll þótt það sé innan byggðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Fljúgandi hálka víða um land

Fljúgandi hálka er víða um land eftir að rigna tók á svellbunka og hafa nokkur umferðaróhöpp þegar orðið en hvergi alvarleg slys. Bíll valt í gærkvöldi á þjóðveginum austan við Selfoss og annar í Þrengslum án þess að nokkurn sakaði alvarlega.

Innlent
Fréttamynd

Hálka víðast hvar

Hálka og vetrafærð er á landinu. Búið er að moka Klettsháls og Ísafjarðardjúp. Þæfingur er á Þverárfjalli, éljagangur á Öxnadalsheiði, á Ausfjörðum er Öxi ófær og snjóþekja og éljagangur er á Suðurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Snjóflóðahætta liðin hjá

Íbúar í tveimur íbúðarhúsum af þremur á bæjum í Reynishverfi í Mýrdal, sem þurftu að yfirgefa heimili sín í gærkvöldi, fengu að snúa aftur heim fyrir stundu. Fólkið rýmdi hús sín að tilmælum Almannavarnanefndar Vestur-Skaftafellssýslu og gistu á öðrum bæjum í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Snjóflóðahættu að hluta aflýst

Snjóflóðahættu í Reynishverfi við Vík í Mýrdal hefur að hluta verið aflétt. Heimilisfólki á bæjunum Lækjarbakka og Reyni hefur verið leyft að snúa heim.

Innlent
Fréttamynd

Snjóflóð lokaði veginum

Snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð í gærkvöldi og lokaði þjóðveginum á milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Vegna frekari flóðahættu var ekki ráðist í að ryðja veginn í gærkvöldi en nú er orðið logn og blíða á svæðinu og vegagerðarmenn eru búnir að opna veginn.

Innlent
Fréttamynd

Órólegur snjór miðað við magn

Meira hefur verið um snjóflóð á Vestfjörðum undanfarið en snjódýptartölur segja til um, að sögn Trausta Jónssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Hús rýmd vegna snjóflóðs

Íbúar úr þremur húsum í Reynishverfi í Mýrdal yfirgáfu heimili sín í gærkvöldi að tilmælum Almannavarnanefndar Vestur-Skaftafellssýslu og gistu á öðrum bæjum í nótt. Í gærkvöldi féll snjóflóð í grennd við bæinn Garða í Reynishverfi og var þá ákveðið að rýma Garða og tvö hús í viðbót. Ekki hefur frést af frekari snjóflóðum á svæðinu í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Mesta hrina snjóflóða í níu ár

Veðurstofu Íslands hafa borist upplýsingar um sjötíu snjóflóð frá jólum til sjötta janúar. Langflest flóðanna féllu á Vestfjörðum, nokkur flóð féllu í Ólafsfjarðarmúla en lítið annars staðar. "Önnur eins snjóflóðahrina hefur ekki komið síðan árið 1995," segir Leifur Örn Svavarsson, á snjóflóðavakt Veðurstofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Hundruð þúsunda án rafmagns

Nærri helmingur Letta og um nokkur hundruð þúsund Norðurlandabúar bjuggu við rafmagnsleysi í gær í kjölfar óveðursins sem gekk yfir svæðið um helgina og kostaði ellefu manns lífið.

Erlent