Skútan Um helgina missti einhver skútu á götuna þar sem leið viðkomandi lá eftir Hafnarfjarðarveginum. Það var í fréttunum. Ef þetta er ekki merki um að góðærið sé komið aftur þá veit ég ekki hvað. Bakþankar 12.2.2017 19:45
Óvelkomnar minningar Internetið virðist, þvert á það sem áður var talið, vera eitthvað miklu meira en bara bóla. Bakþankar 29.1.2017 22:07
Þögn á vegum Ég er ekki þátttakandi í bíllausa lífsstílnum, þvert á móti reyni ég að keyra sem mest. Aðalástæðan fyrir því er sú að vinir mínir eru svo margir bíllausir þannig að ef ég væri ekki á bíl gætum við aldrei farið saman í bílalúgur. Bakþankar 26. september 2016 07:00
Hin hinsta spurning Ég las nýlega grein sem fjallaði um mikilvægi þess að verða ekki of upptekinn af frama og dugnaði í lífinu. Bakþankar 12. september 2016 10:00
Staðalbúnaður Ég hef aldrei haft mikla þörf fyrir að tala um það að einu sinni í mánuði fossi úr mér blóð, fyrr en núna. Ég sá að kynsystur mínar voru að benda á það á alnetinu hversu eðlilegt væri að geta nálgast grunnblæðingabúnað á almenningssalernum. Virkilega satt og rétt. Svörin sem biðu þeirra voru: En ef þið konur fáið þetta frítt, hvað fá karlarnir þá? Bakþankar 29. ágúst 2016 07:00
Leikskólafrí Nú fer loksins að sjá fyrir endann á þessu sumarrugli. Smyrðu ömmuflatköku og tíndu rifsber hvað ég er tilbúin í þetta haust. Ástæðan? Sumarfrí í leikskólum. Bakþankar 15. ágúst 2016 06:00
Púðluhelgin mikla Í æsku dreymdi mig, eins og kannski flesta krakka, um að eiga hund og ég horfði á myndina um Emil og Skunda ótal sinnum. Bakþankar 18. júlí 2016 07:00
Ostasorg Hafiðið verið í ástarsorg? Ég hef. Ég er í svoleiðis núna meira að segja og finnst það fínt. Ástarsorg er ein uppáhalds sorgin mín. Bakþankar 4. júlí 2016 07:00
Spennusaga í fríinu Ég er stödd í höfuðstað Katalóníu um þessar mundir og nýt þess að vera í fríi Bakþankar 20. júní 2016 07:00
Rúllukragasumar Sumarið er loksins komið með sína ylvolgu sólardaga og hvað gerir maður þá? Nú, pakkar að sjálfsögðu sandölum í tösku og drífur sig af landi brott til að njóta hita og sólar annars staðar. Bakþankar 6. júní 2016 07:00
Gleraugna–glámur Frá því að ég var píreygur 9 ára krakki hefur sjón minni farið hrakandi og ég sit nú uppi með nærsýni upp á þrjár kommur og sjónskekkju eins og söguhetjan í Dagbókum Berts. Bakþankar 23. maí 2016 07:00
Listafréttir Ég reyni eftir fremsta megni að haga mér eins og ég sé fullorðin og einn liður í þeirri hegðun er fréttaáhorf. Bakþankar 9. maí 2016 07:00
Álag Þar sem ég vinn á auglýsingastofu er ég alveg að drepast úr týpuálagi og eitt af mínum flúruðu karaktereinkennum er að ég drekk alveg geggjað mikið kaffi. Það geri ég til að örva heilann, vera hress og fá sturlaðar hundraðþúsundkrónahugmyndir Bakþankar 25. apríl 2016 07:00
Vika ársins Sigmundur, Bjarni, Tortóla, bjúgu, Panama, bananar, Dorrit í geimnum og allt það. Muniði? Síðasta vika var svo ógeðslega sturluð að allar hinar 1.408 vikur lífs míns blikna í samanburði. Bakþankar 11. apríl 2016 00:00
Kjósið mig Allir eru að bjóða sig fram til forseta nema ég, en ég er reyndar of ung til að bjóða mig fram. Af hverju þarf maður að vera svona gamall til að fara í framboð? Væri ekki frískandi að fá eina 26 ára með háskólapróf í dansi í forsetaembættið? Ég gæti haldið ógleymanlegar veislur á Bessastöðum. Bakþankar 14. mars 2016 07:00
Mjúki penninn Þegar ég byrjaði að skrifa bakþanka lagðist ég næstum í rúmið af áhyggjum. Bakþankar 29. febrúar 2016 07:00
Innihaldsríkur bakþanki Ég tek sjálfa mig venjulega frekar óhátíðlega en ákvað nýlega að breyta út af vananum og fór sérstaklega upp í sveit til að skrifa þennan bakþanka. Ég bara verð að komast úr bænum, elskan, sagði ég við elskuna mína sem rúllaði undir eins upp svefnpokunum og reddaði sumarbústað hjá starfsmannafélagi eins og hendi væri veifað. Bakþankar 1. febrúar 2016 07:00
Framkvæmda-ógleði Milli þess sem ég skelli uppúr yfir skoðunum fólks á listamannalaunum og lifi mínu eðlilega lífi vinn ég hörðum höndum að því að gera upp nýju íbúðina mína. Bakþankar 18. janúar 2016 07:00
Jákvætt nýtt ár Góðan dag. Erfiðasti dagur ársins er runninn upp. Jólatré í stofu stendur, byrjað að þorna upp og taka-niður-jólaskraut-kvíðinn nagar mann að innan. Nú er matarboðið sem við erum búin að vera að undirbúa síðastliðna þrjá mánuði yfirstaðið og tími til kominn að kasta öllum afgöngum út um gluggann og hefja nýtt líf veganisma og boozt-lífs. Bakþankar 4. janúar 2016 07:00
Jólaraunir Ég er í sambúð með manni sem er svo yndislegur og góður en einn galla hefur hann. Hann er nefnilega þannig gerður að þegar hann langar í eða vantar eitthvað spænir hann af stað med det samme og kaupir það sjálfur. Þetta er hreinasta helvíti fyrir velgjörðarfólk hans, mig og mína vönduðu tengdamóður Bakþankar 21. desember 2015 00:00
Grýlukerti í hausinn Það er kominn sjöundi desember, Almar er örugglega við það að skríða úr kassanum og Aaron Carter á afmæli í dag. Það eru 24 dagar eftir af árinu, 17 dagar til jóla og loksins samfélagslega samþykkt að drekka jólaglögg á öllum tímum sólarhringsins því það er svo ógeðslega kalt. Bakþankar 7. desember 2015 07:00
Albúm Fílar hafa ótrúlega gott minni og það sama má segja um mig. Ég man til dæmis einstaklega vel eftir æsku minni og öllum hennar smáatriðum. Ég komst að því um daginn þegar ég byrjaði að rifja upp minningar úr leik- og grunnskóla af slíkri nákvæmni að vinnufélagar mínir litu hvor á annan og sögðust sjálfir aðeins muna eftir tilvist sinni, svona nokkurn veginn, í grunnskóla en ekki mikið meira en það. Bakþankar 9. nóvember 2015 07:00
Þytur í laufi Ekkert öskrar íslenskur realismi eins og stingandi ískalt loft og laufhrúgur í innkeyrslu. Brennið sólstólana og dragið fram kakóið, veturinn er loksins kominn. Bakþankar 26. október 2015 09:00