Bakþankar

Álag

Berglind Pétursdóttir skrifar
Þar sem ég vinn á auglýsingastofu er ég alveg að drepast úr týpuálagi og eitt af mínum flúruðu karakter­einkennum er að ég drekk alveg geggjað mikið kaffi. Það geri ég til að örva heilann, vera hress og fá sturlaðar hundraðþúsundkrónahugmyndir. Það setti því talsvert stórt strik í týpureikninginn þegar kaffivél vinnustaðarins gaf upp öndina um daginn. Getiði ímyndað ykkur áfallið? Hún var reyndar örugglega búin að hella upp á sjö milljónir kaffibolla yfir mánuðinn en engu að síður var þetta kjaftshögg. Ég fann hvernig tærnar krulluðust af spennu í Birkenstock-inniskónum og fráhvarfseinkennin kitluðu mig í heilabörkinn.

Ég reifst einu sinni við konu á netinu sem hélt því fram að kaffi væri mest ávanabindandi eiturlyf í heimi. Þetta er eina skiptið sem ég hef rifist við nokkurn mann á netinu á ævi minni. Hefur þessi kona aldrei prófað heróín eða krakk?

Allavega. Í kaffileysinu var brugðið á það ráð að hella uppá á gamla mátann (sem ég veit ekki alveg hvernig er, örugglega bara skrúfað frá heita vatninu í krananum og látið renna í gegnum poka af BKI) og dregnar fram tvær risakönnur með pumpu sem höfðu ekki litið sólarljós síðan í næntís.

Á svipstundu var ég komin til himna. Það er nefnilega fátt betra en síðustu droparnir úr pumpukönnu sem prumpufrussast í bollann og skvettast á skyrtuna í leiðinni. Sjóðheitt og þunnt kaffi sem er á litinn eins og te. Eins og maður sé skyndilega staddur á Litlu Kaffistofunni með tilheyrandi plastdúkum, upprúlluðum pönnukökum með sykri og gömlu fótboltaskrauti. Og á svoleiðis stað vilja allir auglýsingahipsterar vera.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. apríl






×