Erlent

Óttast að íbúar séu myrtir og pyntaðir af stjórnarliðum

Samúel Karl Ólason skrifar
Talið er að um 50 þúsund súnnítar sitji fastir í Fallujah og séu notaðir til að skýla vígamönnum. Svo virðist sem að flótti sé ekki það besta í stöðunni fyrir fólkið.
Talið er að um 50 þúsund súnnítar sitji fastir í Fallujah og séu notaðir til að skýla vígamönnum. Svo virðist sem að flótti sé ekki það besta í stöðunni fyrir fólkið. Vísir/AFP
Talið er að hundruð almennra borgara Fallujah, sem tilheyri súnnítum, hafi verið pyntaðir og myrtir af vopnuðum sveitum sjíta sem berjast með her Írak við borgina. Borgararnir eru sagðir hafa verið á flótta frá Fallujah sem er í haldi Íslamska ríkisins. Einnig hafa borist fréttir af því að vígamenn ISIS hafi skotið fólk sem reyni að flýja frá borginni.

Í samtali við Telegraph staðfesta embættismenn í Anbar héraði að vopnaðar sveitir sjíta hafi handsamað um 600 súnníta í einu þorpi nærri Fallujah og tugi þar að auki sem flúið hafi frá borginni.

Einn embættismaður segir fólkið hafa verið flutt til nærliggjandi herstöðvar þar sem menn hafi verið pyntaðir grimmilega. Hjúkrunarfræðingur sem blaðamenn Telegraph ræddi við segir tugi alvarlega meiddra manna hafi verið flutt á nærliggjandi sjúkrahús. Þar að auki hafi nokkur „brotin“ lík verið flutt þangað.

Miklar áhyggjur hafa verið uppi um að svona atvik gætu komið upp og hafa þessar vopnuðu sveitir sjíta, sem kallast Popular Mobilistation Units, einungis fengið að berjast við jaðar borgarinnar. Íbúar Fallujah eru að miklum meirihluta súnnítar. Talið er að um 50 þúsund manns séu í Fallujah.

Áðurnefndur hjúkrunarfræðingur segir að mennirnir sem hann hafi hlúð af, hafi trúað því að stjórnarliðar myndu koma þeim til aðstoðar við að komast í öryggi. Blaðamenn Telegraph hafa skoðað myndir af fólkinu sem virðist hafa verið pyntað. Í umfjöllun þeirra er tekið fram að meiðsl fólksins séu margskonar en einn maður virðist hafa verið húðflettur að hluta.

PMF sveitirnar hafa margsinnis verið sakaðar um að beita súnníta ofbeldi frá því að sókn Íraka gegn ISIS hófst. Yfirvöld hafa ávalt neitað slíkum ásökunum, en þrátt fyrir það hefur verið ákveðið að sveitirnar munu ekki koma að sókninni inn í Fallujah.


Tengdar fréttir

Íraksher reynir að endurheimta Fallúdsja

Daish-samtökin hafa haft Fallúdsja í Írak á sínu valdi í meira en tvö ár. Búist er við langvinnum átökum sem bitni hart á um 50 þúsund íbúum borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×