Golf

Ólafur Loftsson endaði í 45. sæti í Svíþjóð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafur Björn Loftsson verður í Evrópu í ár.
Ólafur Björn Loftsson verður í Evrópu í ár. vísir/daníel
Ólafur Björn Loftsson, atvinnukylfingur úr Nesklúbbnum, hafnaði í 45. sæti sæti ásamt þremur öðrum kylfingum á Landeryd-meistaramótinu í Linköping, en það er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni.

Alls tóku 156 kylfingar þátt í mótinu og komst Ólafur í gegnum niðurskurðinn. Hann spilaði fyrsta hringinn á 72 höggum eða pari vallarins, annan hringinn á einu höggi undir par og þann þriðja á tveimur höggum yfir pari.

„Ég var sáttur með spilamennskuna mína í mótinu. Völlurinn hentaði mínum leik illa þar sem hann var galopinn, mjög breiðar brautir og lítill kargi. Þar að auki spilaðist völlurinn langur þar sem hann var blautur eftir dágóðan rigningarskammt,“ segir Ólafur á Facebook-síðu sinni.

Hann stoppar nú sutt á Íslandi áður en hann hefur leik á Willis-meistaramótinu í Danmörku í næstu viku, en það er hluti af sömu mótaröð.

Ólafur notar þessi mót til að undirbúa sig fyrir úrtökumótin á Evrópumótaröðinni, en fyrsta mótið hjá honum þar hefst 23. september. Hann ætlar að einblína á Evrópumótaröðina í ár, eins og má lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×