Golf

Ólafía Þórunn örugg með verðlaunafé

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía Þórunn horfir á eftir teighöggi.
Ólafía Þórunn horfir á eftir teighöggi. Mynd/GSÍ/seth@golf.is
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur spilað glimrandi golf fyrstu tvo keppnisdagana á hennar fyrsta LPGA-móti á ferlinum.

Hún flaug í gegnum niðurskurðinn en hún er í 20.-25. sæti á sjö höggum undir pari samtals. 

79 efstu kylfingarnir komust í gegnum niðurskurðinn á Pure Silk-mótinu á Bahama-eyjum en allir kylfingar sem komast í gegnum niðurskurðinn fá hluta af vinningsfé mótsins.

Sjá einnig: Ólafía Þórunn færist á Stöð 2 Sport 4

Alls eru 1,4 milljónir dollara, jafnvirði 162 milljóna króna, til skiptanna. Sigurvegari mótsins fær 24,3 milljónir króna og aðrir minna, eins og eðlilegt er. Búast má við því að þeir sem endi í neðstu sætunum fái ekki minna en 250 þúsund krónur í sinn hlut.

Sjá einnig: Ólafía hefði fengi milljón hefði hún endað í þessu sæti í fyrra

Ef að Ólafía Þórunn heldur sér á svipuðum slóðum og hún er á núna gæti hún fengið eina og hálfa milljón í sinn hlut. Ólafía hefur þó margsinnis sagt sjálf að hún velti peningamálunum ekki fyrir sér og að hún einbeiti sér fremur að spilamennskunni.

Sjá einnig: Vil mjólka það að ég sé frá Íslandi

Peningamálin skipta þó miklu máli þegar uppi er staðið þar sem efstu 125 kylfingarnir á peningalista LPGA-mótaraðarinnar í lok árs endurnýja sjálfkrafa keppnisrétt sinn á mótaröðinni.

Golfstöðin hefur sýnt frá fyrstu tveimur keppnisdögunum en þar sem útsendingartími mótsins skarast við útsendingartíma Farmers Insurance mótið á PGA-mótaröðinni verður sýnt frá Pure Silk-mótinu á Stöð 2 Sport 4. Útsendingin, sem hefst klukkan 20.00, verður aðgengileg fyrir áskrifendur Golfstöðvarinnar.

Þá verður vitaskuld bein textalýsing frá gangi mála á íþróttavef Vísis.


Tengdar fréttir

Harður heimur fyrir Ólafíu

Fólk sem stendur Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur nærri telur að hún muni halda þátttökurétti sínum á LPGA-mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×