Golf

Ólafía Þórunn: Ég er alltaf að læra betur á völlinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær hér á 10. teig.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær hér á 10. teig. Mynd/seth@golf.is
Það stefnir í æsispennandi keppni í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem hófst í dag á Jaðarsvelli á Akureyri en það munar aðeins tveimur höggum á efstu þremur konunum eftir fyrstu átján holurnar.

Það rigndi hressilega í morgun og fram eftir degi en keppendur létu það ekki hafa mikil áhrif á sig. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er með eitt högg í forskot á Valdísi Þóru Jónsdóttur úr Leyni og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK er tveimur höggum á eftir Ólafíu.

Ólafía og Valdís hafa báðar fagnað Íslandsmeistaratitlinum í tvígang en Guðrún Brá á eftir að fagna þessum stóra titli en keppt er um Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki í 50. skipti í ár.

Golfsamband Íslands var með viðtal við þær þrjár efstu á heimsíðu sinni en þau má sjá hér fyrir neðan.



Ólafía Þórunn: Ég stefni á að þarf að halda mér í kringum parið

„Þetta var allt í lagi. Ég var að spila ágætlega en það var erfitt að koma á flatirnar á seinni 9 holunum þær eru hægari. Ég var of stutt í nokkrum púttum, var í nokkrum fuglafærum, en í heildina var ég að pútta mjög vel. Ég var með 26 pútt en missti nokkrar flatir og var því að bjarga mér ágætlega. Ég stefni á að þarf að halda mér í kringum parið og þá er ég í ágætum málum. Ég hef ekki oft spilað hérna, held ég hafi leikið á einu unglingamóti og í fyrra á Íslandsmótinu í holukeppni. Ég er því alltaf að læra betur á völlinn,“ sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir við golf.is.

 

Valdís: Þessi völlur hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér

„Veðrið var ekki erfitt, það var smá rigning sem var ekkert að trufla mig. Ég sló illa á fyrri 9 holunum og var ekki sátt við fyrstu holurnar en ég náði að laga þetta á seinni hlutanum. Þar fékk ég þrjá fugla á seinni níu. Það var ekki gott að fá skolla á 2., og 3. og 15. Ég var ekki að nýta mér par 5 holurnar sem ég geri nú oftast. Það var gaman að spila í dag og mér finnst nýju brautirnar á Jaðarsvelli skemmtilegar og þessi völlur hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér,“ sagði Valdís Þóra Jónsdóttir við golf.is.

 

Guðrún Brá: Var að missa fuglana þegar þeir voru í færi

„Þetta var allt saman frekar einfalt og jafnvel leiðinlegt golf hjá mér. Ég er samt sátt, ég byrjaði mjög vel og hefði léttilega getað verið þrjá undir eftir fyrstu þrjár holurnar. Púttin voru ekki að detta, var að bjarga pari með góðum vippum og missa fuglana þegar þeir voru í færi. Það var ekkert að gerast í raun og veru. Aðstæðurnar voru ekki erfiðar, það var blautt og maður hefur spilað í slíku veðri. Það er góð stemmning að koma til Akureyrar, sérstaklega að spila á Íslandsmótinu. Þeir eru búnir að gera þetta mjög vel og það er gott að vera hérna,“ sagði Guðrún Brá Björgvinsdóttir við golf.is.


Tengdar fréttir

Sögubækurnar bíða Birgis Leifs

Birgi Leifi Hafþórssyni og Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur er spáð Íslandsmeistaratitlinum í höggleik en mótið hefst á Jaðarsvelli á Akureyri í dag. Vinni Birgir verður hann sigursælastur í sögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×