Golf

Ólafía á einu undir pari eftir fyrstu níu holurnar í Ástralíu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía Þórunn er að keppa á sínu öðru móti á LPGA mótaröðinni.
Ólafía Þórunn er að keppa á sínu öðru móti á LPGA mótaröðinni. mynd/golf.is/seth
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék fyrri níu holurnar á fyrsta hringnum á ISPS Handa mótinu á einu höggi undir pari.

Mótið, sem fer fram í Adelaide í Ástralíu, er hluti af LPGA mótaröðinni.

Ólafía byrjaði á því að fá skolla en fékk svo par á næstu fjórum holum.

Ólafía nældi sér svo í fugl á 15. og 17. holu og lék 16. og 18. holu á parinu. Fín byrjun hjá Ólafíu sem er að keppa á sínu öðru móti á LPGA mótaröðinni.

Ólafía er jöfn 14 öðrum kylfingum í 11. sæti. Keppendur eru komnir mislangt á veg.

Fylgjast má með gangi mála á mótinu með því að smella hér.


Tengdar fréttir

Búumst við enn betri árangri hjá Ólafíu í Ástralíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur keppni í kvöld á sínu öðru móti á LPGA-mótaröðinni. Nú er keppt í Adelaide í Ástralíu en þjálfari hennar segir að hún hafi nýtt tímann eftir síðasta mót til að safna kröftum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×