Erlent

Óeirðir í kjölfar lögregluofbeldis

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Barið á Rodney King árið 1991.
Barið á Rodney King árið 1991.
Nokkuð algengt er að óeirðir brjótist út í Bandaríkjunum í kjölfar lögregluofbeldis, einkum þegar hvítir lögreglumenn verða hörundsdökku fólki að bana. Nú síðast er allt á suðupunkti í bænum Ferguson þar sem átján ára drengur var skotinn til bana af lögreglu. Meirihluti lögreglumanna í bænum er hvítur en Brown var svartur.

Nokkur helstu dæmi síðustu áratuga eru hér tilgreind:

1992

Óeirðir brutust út í Los Angeles eftir að fjórir lögreglumenn voru sýknaðir í máli blökkumannsins Rodneys King, þrátt fyrir að myndband næðist af þeim þar sem þeir sáust berja King til óbóta árið áður. Óeirðirnar kostuðu 53 manns lífið, en meira en tvö þúsund hlutu misalvarleg meiðsli. Tveir lögreglumannanna voru svo sakfelldir og dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir alríkisdómstóli árið eftir, en hinir tveir sýknaðir. King lést árið 2012, 47 ára.

2001 Mótmæli í Cincinnati.
1996

Lögreglumaðurinn Jim Knight skaut átján ára blökkupilt, Tyron Lewis, í St. Petersburg eftir að hafa stöðvað hann fyrir of hraðan akstur. Óeirðir brutust út í borginni og stóðu í tvo daga. Lögreglumaðurinn var sýknaður nokkrum vikum síðar og hófust þá óeirðir á ný.

2001

Óeirðir brutust út í Cincinnati og stóðu í nokkra daga eftir að lögreglumaður, Stephen Roach að nafni, skaut ungan blökkumann, Timothy Thomas. Roach var í hópi lögreglumanna sem voru að elta Thomas á hlaupum. Roach var seinna sýknaður af öllum ákærum.



2003


Óeirðir brutust út í Benton Harbor í Michigan eftir að vélhjólalögreglumaður hafði elt svartan mann, Terrance Shurn, sem á endanum ók mótorhjóli sínu á hús og lét þar lífið.

2009 Friðsamleg mótmæli í Oakland snerust upp í óeirðir eftir að lögreglumaður skaut óvopnaðan svartan mann, Oscar Grant, í bakið á lestarstöð. Lögreglumaðurinn, Johannes Mehserle, fékk tveggja ára fangelsisdóm fyrir manndráp af gáleysi.


Tengdar fréttir

Ku Klux Klan á leið til Ferguson

Liðsmenn samtakanna hyggjast „verja verslanir í eigu hvítra“ í þeim mótmælum sem nú hafa staðið yfir síðustu daga.

Reiðin kraumar enn í Ferguson

Lögreglumenn í bænum Ferguson í Missouri beittu táragasi enn á ný gegn mótmælendum í bænum í nótt en þar hefur allt verið á suðupunkti frá því óvopnaður unglingspiltur var skotinn til bana af lögreglumanni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×