Innlent

Ný Ölfusárbrú víkur fyrir breiðari Suðurlandsvegi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Breikkun Suðurlandsvegar um Ölfus, milli Hveragerðis og Selfoss, hefst í lok næsta árs og er tekin fram yfir nýja Ölfusárbrú, samkvæmt samgönguáætlun næstu fjögurra ára, sem birt var á Alþingi í dag. Þar er jafnframt boðuð tvöföldun Reykjanesbrautar sunnan Hafnarfjarðar.

Vestfirðir fá næstu jarðgöng, byrjað verður á Dýrafjarðargöngum árið 2017 og sama ár á endurbyggingu Dynjandisheiðar. Farið verður í Bjarnarfjarðaháls á Ströndum á þessu ári og stefnt á að hefja vegagerð um Teigsskóg fyrir lok næsta árs, fáist tilskilin leyfi.

Norðanlands verða stærstu verkin jarðgöng á Bakka og Dettifossvegur. Suðaustanlands á að ljúka veginum um Berufjarðarbotn og byrjað verður á brúarsmíði yfir Hornafjarðarfljót árið 2017. Sunnan- og suðvestanlands verður Reykjavegur í Árnessýslu byggður upp á næsta ári, einnig vegirnir um Uxahryggi og Kjósarskarð og þá er ákveðið að breikka veginn milli Hveragerðis og Selfoss.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir í viðtali í fréttum Stöðvar 2 að Suðurlandsvegur milli Hveragerðis og Árborgar sé afar mikilvæg framkvæmd sem muni skipta verulegu máli.

Fyrirhuguð brú yfir Ölfusá við Selfoss hefur verið færð aftar í röðina og er ekki lengur á áætlun næstu fjögurra ára; breikkun vegarins um Ölfus er komin fram fyrir. 

„Það er nú ekki síður vegna óskar heimamanna sem við gerum það. Sú framkvæmd er líka tilbúin þannig að við getum farið af stað með það sem fyrst,“ segir Ólöf.

Hringvegurinn um Ölfus verður þó ekki 2+2 vegur, eins og áður var ráðgert, heldur 2+1 vegur, að sögn ráðherra. Samskonar leið er valin og við endurbætur vegarins um Hellisheiði og Kamba, skilið á milli akreina með vegriði en þeim möguleika haldið opnum að bæta við fjórðu akrein síðar.

Vegagerðin bauð í gær út stærsta verkið á Reykjavíkursvæðinu, sem er framlenging Arnarnesvegar um tvo kílómetra í austurjaðri Kópavogs milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar. Loks má nefna að lokaáfanginn í tvöföldun Reykjanesbrautar, níu kílómetra langur kafli frá Hafnarfirði og suður fyrir Straumsvík, er kominn á dagskrá árið 2018.


Tengdar fréttir

Deilur um Hornafjarðarveg

Lögfræðingur Vegagerðarinnar segir tillögur hóps bænda og landeigenda í Nesjum um vegstæði yfir Hornafjarðarfljót ekki samræmast markmiðum framkvæmdarinnar um umferðaröryggi og styttingu hringvegarins. Hópur bænda og landeigenda í Nesjum hefur stefnt íslenska ríkinu og Vegagerðinni og lagt fram eigin tillögur að lagningu vegarins.

Meira malbikað frá Mývatni á Kópasker

Framkvæmdir við Dettifossveg, Kjósarskarðsveg og Uxahryggjaveg verða boðnar út á næstu vikum vegna 1.800 milljóna króna innspýtingar sem ríkisstjórnin samþykkti í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×