Viðskipti erlent

Ný og endurbætt Surface Book

Samúel Karl Ólason skrifar
Panos Panay frá Microsoft kynnti Surface Book i7.
Panos Panay frá Microsoft kynnti Surface Book i7. Vísir/AFP
Microsoft hélt kynningu á nýjum vörum fyrirtækisins í New York í dag. Þar var meðal annars kynnt ný Surface Book tölva og Surface Studio. Auk þess kynnti fyrirtækið nýja útgáfu af forritinu Paint og væntanlega uppfærslu á Windows 10.

Nýjasta fartölva/spjaldtölva Microsoft, Surface Book i7 hefur verið uppfærð verulega og er fyrirtækið á miða á tölvuleikjaspilara. Microsoft heldur því fram að hún sé tvöfalt öflugari en fyrri útgáfa tölvunnar og með um 30 prósent öflugari rafhlöðu. Á hún að endast í um 16 klukkustundir.

Allt sem var kynnt á 90 sekúndum.

Microsoft kynnti einnig borðtölvuna Surface Studio. Skjárinn er einungis 13 mm þykkur og er tölvan ætluð teiknurum, hönnuðum og fólki sem vinnur við myndvinnslu. Hægt er að halla skjánum, sem einnig er snertiskjár, verulega svo hann verði í raun að teikniborði.

Tölvan inniheldur Intel i5/i7 örgjörva, 4GB Nvidia GeForce skjákort, allt að 32 GB vinnsluminni og 2TB harðan disk.

Þá er hægt að kaupa snúningshnapp með tölvunni sem nota á fyrir fíngerðar stillingar. Jafnvel er hægt að setja það á skjáinn og miðast notagildi hnappsins þar við hvað verið er að gera á skjánum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×