Nubo byggir á 1,4% af landi Grímsstaða sem keypt verður Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. júlí 2012 12:27 Huang Nubo, sem er fyrrverandi embættismaður hjá kínverska ríkinu og núverandi stjórnarformaður Zhong Kun Group, fyrir framan landakort af Íslandi á blaðamannafundi í Peking hinn 2. september 2011. Mynd/AFP
Huang Nubo mun ráðast í framkvæmdir á 1,4 prósentum af landinu Grímsstöðum á Fjöllum sem félagið GáF ehf. í eigu sjö sveitarfélaga mun kaupa og leigja honum síðan. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra óttast að uppbygging Nubos komi til með að kljúfa samfélag okkar í herðar niður, eins og hann kemst að orði. Samningar við Nubo um leigu á jörðinni eru á lokastigi. Hann ætlar að byggja hótel, eitt hundrað einbýlishús og golfvöll á svæðinu. Sjö sveitarfélög á Norðurlandi stofnuðu í síðasta mánuði félagið GáF ehf. (stytting á Grímsstaðir á Fjöllum) en tilgangur félagsins er undirbúa kaup, eignarhald og leigu á hluta Grímsstaða til félags í eigu Huang Nubo. Stefnt er að því að leigutekjur muni standa undir kostnaði við kaup á landinu og er stefnt að því að félag Nubo staðgreiði leiguna fyrirfram til félagsins GáF sem noti síðan peningana til að borga fyrir jörðina, samkvæmt heimildum fréttastofu. Heildarleiguverðið er nálægt 7,8 milljónum dollara, jafnvirði 990 milljóna króna. Athafnasvæði Nubos verður þrír ferkílómetrar. Gerðir verða tveir samningar um jörðina. Annar þeirra er um uppbygginguna á athafnasvæðinu og hin um afnot af öðru landi. Þá verða ákvæði um ýmsar takmarkanir, eins og bann við framkvæmdum sem skemma útsýni. Nubo fær 1,4 prósent af landinu sem keypt verður til afnota og uppbyggingar en 98,6 prósent verða lýst fólksvangur, sem þýðir að hver sem er mun eiga frjálsa för um svæðið og geta notið náttúrunnar þar. Hann ráðgerir að reisa hótel og eitt hundrað einbýlishús, auk golfvallar. Hverjir koma til með að búa í þessum húsum? „Nú er það þannig að ég get ekki svarað því, en það sem er mikilvægt að halda til haga er að það svæði sem hann fær til ráðstöfunar hefur ekki verið skipulagt og hannað. Öll þessi skref sem nauðsynleg eru í þessu verður að stíga í samvinnu við skipulagsvaldið," segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings.Steingrímur á eftir að gefa grænt ljós Svokallaður ívilnunarsamningur vegna uppbyggingarinnar hefur ekki verið undirritaður ennþá og er á borði iðnaðarráðherra. Með honum fæst undanþága frá lagaákvæðum sem banna erlendum félögum að leigja land á Íslandi til langs tíma og þar eru jafnframt ákvæði um skattalegt hagræði. Nefnd þriggja ráðuneyta, svokölluð ívilnananefnd, hefur þegar farið yfir drög að samningnum og mælt með honum. Það er helst á þessum stað þar sem ríkisvaldið gæti skipt sér af áformum Nubos, en Steingrímur J. Sigfússon, sem er nýlega tók við lyklavöldum í iðnaðarráðuneytinu, hefur ekki skrifað undir ennþá. Til þessa hefur iðnaðarráðherra aldrei hafnað samningi sem ívilnananefnd hefur mælt með áður, en sex slíkir samningar hafa verið gerðir á grundvelli laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga, sem samþykkt voru 2010. Þannig að það er eingöngu þessi ívilnunarsamningur þar sem ríkisvaldið gæti skipt sér af þessu ferli? „Já, ég held að það sé rétt," segir Bergur Elías Ágústsson. Í öðru ráðuneyti, innanríkisráðuneytinu, er æðsti maður í brú andvígur fjárfestingu Nubos. Og stöðvaði áform hans í fyrra þegar hann hugðist kaupa jörðina Grímsstaði af landeigendum. Ögmundur Jónasson segir í samtali við Mbl í dag að hann óttist að áformin muni „kljúfa samfélag okkar í herðar niður" eins og hann kemst að orði. Ekki verður hins vegar séð að Ögmundur hafi heimildir til að beita sér gegn uppbyggingunni. Bergur Elías Ágútsson segir að reiknað hafi verið út að 250 varanleg störf á heilsársgrundvelli skapist á Norðausturlandi í tengslum við fjárfestinguna. thorbjorn@stod2.is
Tengdar fréttir Nubo segir samkomulag í höfn um leigu Grímstaða á Fjöllum Kínverski athafnamaðurinn Huang Nubo segir að hann hafi náð samkomulagi um leiguna á Grímsstöðum á Fjöllum og að formlega verði samkomulagið undirritað í síðasta lagi fyrir október n.k. 17. júlí 2012 08:03 Býst við niðurstöðu með haustinu "Málið er í eðlilegum farvegi og við getum búist við niðurstöðu með haustinu," segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um fréttir þess efnis að samkomulag um leigu kínverska fjárfestisins Huangs Nubo um leigu á landi að Grímsstöðum á Fjöllum sé í höfn. Nubo sagði í samtali við Bloomberg að samkomulagið yrði undirritað fyrir október. 17. júlí 2012 12:58 Samningar við Huang Nubo langt komnir Samningaviðræður félags Huangs Nubo við sex sveitarfélög á Norðausturlandi um kaup og leigu á Grímsstöðum á Fjöllum eru langt komnar. Huang segir að heildarfjárfesting hans hér á landi muni nema ríflega 25 milljörðum króna. 18. júlí 2012 05:30 Mest lesið Dr. Bjarni er látinn Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Erlent Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Erlent Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Innlent Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Sjá meira
Nubo segir samkomulag í höfn um leigu Grímstaða á Fjöllum Kínverski athafnamaðurinn Huang Nubo segir að hann hafi náð samkomulagi um leiguna á Grímsstöðum á Fjöllum og að formlega verði samkomulagið undirritað í síðasta lagi fyrir október n.k. 17. júlí 2012 08:03
Býst við niðurstöðu með haustinu "Málið er í eðlilegum farvegi og við getum búist við niðurstöðu með haustinu," segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um fréttir þess efnis að samkomulag um leigu kínverska fjárfestisins Huangs Nubo um leigu á landi að Grímsstöðum á Fjöllum sé í höfn. Nubo sagði í samtali við Bloomberg að samkomulagið yrði undirritað fyrir október. 17. júlí 2012 12:58
Samningar við Huang Nubo langt komnir Samningaviðræður félags Huangs Nubo við sex sveitarfélög á Norðausturlandi um kaup og leigu á Grímsstöðum á Fjöllum eru langt komnar. Huang segir að heildarfjárfesting hans hér á landi muni nema ríflega 25 milljörðum króna. 18. júlí 2012 05:30