Viðskipti innlent

Nóvembervelta ferðamanna svipuð og í júlí 2013

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Nóvembermánuður er jafnan rólegur í ferðaþjónustu og er það til marks um mikinn vöxt greinarinnar að greiðslukortavelta síðasta mánaðar var svipuð og í júlí 2013.
Nóvembermánuður er jafnan rólegur í ferðaþjónustu og er það til marks um mikinn vöxt greinarinnar að greiðslukortavelta síðasta mánaðar var svipuð og í júlí 2013. vísir/ernir
Erlend greiðslukortavelta nam 15,3 milljörðum króna í nóvember síðastliðnum en það er 67 prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. Nóvembermánuður er jafnan rólegur í ferðaþjónustu og er það til marks um mikinn vöxt greinarinnar að greiðslukortavelta síðasta mánaðar var svipuð og í júlí 2013.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að það sem af er þessu ári hafi erlendir ferðamenn greitt um 217 milljarða með kortum sínum samnaborið við 145 milljarða á sama tímabili í fyrra. Greiðslukortavelta fyrstu ellefu mánuði ársins er því um helmingi meiri en á sama tímabili í fyrra og 41 prósent meiri en allt árið 2015.

Erlend kortavelta í verslun nam um 1,8 milljarði króna í síðasta mánuði og jókst um 28 prósent frá nóvember í fyrra. Mestur vöxtur var í flokki dagvöru, 59 prósent, og tollfrjálsri verslun, eða 58 prósent.

Þá varð veruleg aukning í farþegaflutningum með flugi eða um 170 prósent frá fyrra ári en flokkurinn er sá stærsti í þeim tölum sem Rannsóknarsetrið tekur saman. Velta flokksins í síðasta mánuði nam ríflega 3,6 milljörðum en hluti þeirrar fjárhæðar stafar af erlendri starfsemi flugfélaga.

Borið saman við fyrra ár var einnig töluverður vöxtur í öðrum flokkum sem tengjast samgöngum ferðamanna. Þannig jókst kortavelta bílaleiga um 68,3 prósent og velta flokksins „Bensín, viðgerðir og viðhald“ jókst um 84,6 prósent.

„Þrátt fyrir styrkingu krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum er enn gífurleg aukning í  sérsniðnar ferðir um landið með leiðsögn samkvæmt því sem kemur fram í flokknum „Ýmis ferðaþjónusta“. Þannig njóta skoðunarferðir um landið ekki síður vinsælda í skammdeginu en á sumrin. Kortavelta í þessum útgjaldaflokki jókst um 78,2% frá nóvember í fyrra og nam tæpum 2,5 milljörðum króna í mánuðinum,“ segir í tilkynningunni.

Í nóvember komu 131.723 þúsund ferðamenn til landsins um Leifsstöð samkvæmt talningu Ferðamálastofu, 61,4 prósent fleiri en í sama mánuði í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×