Enski boltinn

Neville um brotthvarf Sir Alex: Eins og þegar pabbinn fer og enginn hlustar á stjúpföðurinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gary Neville hlustar á föður sinn.
Gary Neville hlustar á föður sinn. vísir/getty
Gary Neville, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, segir að hluti af sér vissi að sitt gamla lið myndi lenda í vandræðum þegar Sir Alex Ferguson hætti sem knattspyrnustjóri félagsins eftir 26 ár í starfi.

Manchester United varð besta, stærsta og sigursælasta félag Englands á þeim tíma sem Sir Alex Ferguson stýrði því en liðið vann þrettán Englandsmeistaratitla. Hann kvaddi eftir þann síðasta árið 2013.

Síðan þá hefur United ekki verið nálægt því að verða enskur meistari og hefur tvívegis mistekist að komast í Meistaradeildina. Liðið er á þriðja stjóranum á þremur árum síðan Skotinn hætti.

„Besta lýsingin sem ég hef heyrt er að þegar Sir Alex Ferguson hætti var það eins og fjölskyldufaðirinn flutti út og stjúpfaðirinn flutti inn nema enginn hlustar í alvöru á hann,“ sagði Gary Neville í spjalli í Oxford-háskólanum á Englandi í gær.

„Sir Alex vissi hvað allir hétu og komið var jafnt fram við alla. Þegar hann og David Gill [stjórnarformaður Man. Utd] hættu á sama tíma var risastórt gat sem þurfti að fylla. Sir Alex var maðurinn sem allir litu upp til og allt í einu var hann farinn. Hann hélt ákveðnum gæðum og það er bara ekki nógu gott þegar menn víkja bara tvö eða þrjú eða fjögur prósent frá því sem áður var,“ segir Neville.

Bakvörðurinn fyrrverandi bendir á að það tók Ferguson sjö ár að vinna sinn fyrsta titil og þrettán ár að vinna Meistaradeildina og þrennuna. Hann fékk þolinmæði sem síðustu tveir stjórar á undan José Mourinho fengu ekki.

„Við fáum aldrei að vita hvort David Moyes eða Louis van Gaal hefðu orðið frábærir stjórar fyrir Manchester United. Það mun enginn maður njóta sömu þolinmæði aftur,“ segir Neville.

„Ef menn vilja árangur strax getur það fljótt farið í vaskinn. Manni líður stundum að hverjar 100 milljónir punda sem United eyði skapi nýjar 100 milljónir punda af vandamálum,“ segir Gary Neville.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×