Viðskipti erlent

NBA-deildin semur við Pepsi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Forstjórinn Indra Nooyi kynnti samninginn fyrir hönd PepsiCo.
Forstjórinn Indra Nooyi kynnti samninginn fyrir hönd PepsiCo. Nordicphotos/afp
Bandaríski drykkjarframleiðandinn PepsiCo mun styrkja bandarísku NBA-körfuboltadeildina á næsta leiktímabili. Þar með er 28 ára auglýsingasamningi deildarinnar við Coca Cola lokið.

BBC segir að upplýsingar um verðmæti samningsins sem gerður var við Pepsi liggi ekki fyrir. „NBA hefur reynst ein af skemmtilegustu og framsæknustu íþróttadeildum í heiminum,“ segir Indra Nooyi, forstjóri Pepsi. „Við hlökkum til að vinna sameiginlega að því að þróa sameiginlega markaðssamninga,“ segir hún ennfremur.

Samningurinn lýtur að kynningu á margvíslegum vörum, þar á meðal Pepsi, en einnig drykkjunum Aquafina og Lipton Brisk. Einnig lýtur samningurinn að Doritos og Ruffles. Mountain Dew verður aðaldrykkur NBA-deildarinnar.

Þótt Coca Cola muni ekki lengur styrkja NBA-deildina þá mun fyrirtækið styrkja einstök lið og leikmenn í deildinni.

Coca Cola hefur einni samið við Bandaríska knattspyrnusambandið og Meistaradeildina í Bandaríkjunum og Kanada. Pepsi hefur verið með samning við Meistaradeildina allt frá því að hún hóf fyrst göngu sína árið 1996.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×