Viðskipti innlent

Næsta skref er aflétting á útstreymi gjaldeyris

Már Guðmundsson seðlabankastjóri á fundinum í morgun.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri á fundinum í morgun. Mynd/Sigurjón
Seðlabankinn hefur stigið fyrsta skref í afnámi gjaldeyrishafta, en innstreymi erlends gjaldeyris til nýfjárfestinga er nú heimilað. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í Seðlabankanum í morgun.

Seðlabankastjóri sagði á fundinum að gjaldeyrishöftin sem sett voru í nóvember 2008 hafi verið talin nauðsynleg til að koma á stöðugleika í þjóðarbúskapnum í kjölfar bankahrunsins. Aðstæður hafi nú skapast til að stíga fyrsta skrefið í afnámi haftanna.

Meðal annars liggi fyrir langtímaáætlun í ríkisfjármálum sem felur í sér mikið aðhald. Þá sé fyrstu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lokið, en hún tryggir Seðlabankanum aðgang að auknum gjaldeyrisforða.

Innstreymi erlends gjaldeyris sem er tilkomið vegna nýfjárfestinga er nú heimilað og framtíðar útstreymi gjaldeyris sem leiðir af þeim fjárfestingum. Þetta þýðir að fjárfestar fá heimild án takmarkana til að skipta söluandvirði eigna sem þeir fjárfesta í frá og með deginum á morgun aftur í erlendan gjaldeyri. Erlendir aðilar hafa ennþá, líkt og áður, fulla heimild til að skipta vaxtatekjum og arði af fjárfestingum hér á landi í erlendan gjaldeyri.

Seðlabankastjóri segir að ef innstreymið verður verulegt gæti það auðveldað bankanum að kaupa gjaldeyri á næstunni og búa þannig í haginn fyrir næsta skref sem verður aflétting á útstreymi erlends gjaldeyris.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×