Enski boltinn

Mourinho nálægt því að semja við Manchester United

Tómas Þór Þórðarson skrifar
José Mourino vill taka við Manchester United.
José Mourino vill taka við Manchester United. vísir/getty
José Mourinho er nálægt því að ganga frá samningi við Manchester United um að verða næsti knattspyrnustjóri félagsins, samkvæmt Sky Italia.

Portúgalinn hefur verið sterklega orðaður við United síðan hann var rekinn frá Chelsea og sá orðrómur hefur bara orðið sterkari eftir að Pep Guardiola valdi Manchester City fram yfir United.

Louis van Gaal klárar að öllum líkindum leiktíðina á Old Trafford, en undir hans stjórn er United-liðið nú búið að vinna tvo leiki í röð í deild og bikar og skora þrjú mörk í þeim báðum.

Mourinho þekkir það vel að berjast gegn Pep Guardiola en El Clásico-viðureignir Real Madrid og Barcelona undir þeirra stjórn voru oft miklir hitaleikir.

Nú gæti svo farið að þessir fornu fjendur berjist á ný næsta vetur og þá með lið í sömu borginni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×