Innlent

Moskuandstæðingar lýsa yfir stuðningi við Framsóknarflokkinn

Jakob Bjarnar skrifar
Andstæðingar múslima á Íslandi þakka sér góðan árangur Framsóknarflokksins nú og heita á hann í næstu alþingiskosningum.
Andstæðingar múslima á Íslandi þakka sér góðan árangur Framsóknarflokksins nú og heita á hann í næstu alþingiskosningum.
Mikið líf hefur færst í Facebook-hópinn „Mótmælum mosku á Íslandi“, en meðlimir þar eru hátt í fimm þúsund. Þar fer fram látlaus umræða um meint óhæfuverk sem rekja megi til trúar Islams og ógnina sem á að stafa af múslimum.

Þar hefur nú verið lýst yfir stuðningi við Framsóknarflokkinn í alþingiskosningum eftir þrjú ár. Umsjónarmenn síðunnar þakka sér góðan árangur framsóknarmanna í sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík. Í aðdraganda borgarstjórnarkosninga lýsti Skúli Skúlason, einn aðstandenda síðunnar, stuðningi við Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur, oddvita Framsóknarflokksins og flugvallarvina í borginni, og gerði það sérstaklega á Facebooksíðu hennar. Helst er á þeim að skilja sem tilheyra þessum hópi að nú standi til að láta kné fylgja kviði.

Sveinbjörg Birna hefur lokað Facebook-síðu sinni og ekki næst í hana í síma. Einn forsvarsmanna umræddrar síðu skrifar undir nafninu T.T. Hann telur engan vafa á leika að andstæðingum mosku á Íslandi megi þakka góðan árangur flokkurinn fékk í nýafstöðnum kosningum, en þeir fengu tvo fulltrúa inn í borgarstjórn. „STUÐNINGUR SVEINBJARGAR BIRNU VIÐ GOTT MÁLEFNI SKIPTI SKÖPUM.“ er yfirskrift pistils sem T.T. ritar á síðuna. Þar segir meðal annars: „Það var lítil von um að framboðið næði neinum inn á meðan málaflokkarnir voru aðeins hefðbundnir, að viðbættu flugvallarmálinu. Það gaf í skoðanakönnum ekki mann í borgarstjórn. Þegar lóðarmálinu í moskumálinu var bætt við þá skipti það greinilega sköpum fyrir framboðið. Það eru mikil vatnaskil þegar öflugur stjórnmálamaður, sem Sveinbjörg Birna greinilega er auk þess að vera lífsreynd húsmóðir og lögmaður brýtur glerhúsið utan um íslam og múslíma og alla þöggunina og óttaveldið.“

Síðar í pistlinum segir: „Nú verða þingkosningar eftir tvö ár á Íslandi og stuðningur okkar hjá „Mótmælum Mosku á Íslandi“ getur valdið straumhvörfum aftur fyrir þann flokk sem ákveður að styðja okkar málefni og markmið. Áfram Sveinbjörg og Guðfinna við styðjum ykkur og munum fylgjast spennt með framvindu mála. Láttu rauðliðaliðið og múslímana ekki svekkja þig og haltu ótrauð áfram.“


Tengdar fréttir

Umdeild teikning í Fréttablaðinu

Ólafur Stephensen ritstjóri segir það ekki koma til greina að biðjast afsökunar á skopmynd Gunnars Karlssonar.

„Harkalega ráðist á oddvita flokksins í borginni"

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að ummæli Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, oddvita Framsóknar í Reykjavík, hafi ekki verið meðvitað útspil til að vekja athygli á framboðinu. "Þetta var eitthvað sem hafði verið til umræðu en ekki upp á yfirborðinu.“

Gamlir leiðtogar Sjálfstæðisflokks standa með Framsókn

Framsóknarflokkurinn hefur átt sviðið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Vaxandi gremja er meðal sjálfstæðismanna með stöðuna og þróun mála, en fyrrverandi forystumenn flokksins í borgarstjórn gagnrýna nú félaga sína og taka upp hanskann fyrir Framsókn.

Enn þegir Sigmundur Davíð

Vaxandi óþol er gagnvart því að forysta Framsóknarflokksins taki ekki afgerandi um afstöðu til mjög svo umdeildrar afstöðu oddvita flokksins í Reykjavík sem túlkuð hefur verið sem andúð í garð innflytjenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×