Viðskipti innlent

Missa fjórðu íbúðina á aðeins þremur árum

Snærós Sindradóttir skrifar
Ariana Katrín Katrínardóttir og dóttir hennar, Hanna Kaðlín Magnúsdóttir, en sú stutta er að fara að flytja í fjórða sinn frá fæðingu, aðeins þriggja ára.
Ariana Katrín Katrínardóttir og dóttir hennar, Hanna Kaðlín Magnúsdóttir, en sú stutta er að fara að flytja í fjórða sinn frá fæðingu, aðeins þriggja ára. vísir/stefán
„Við erum sem sagt að fara að flytja í fjórða skiptið síðan stelpan mín fæddist. Hún er þriggja ára og er að fara að flytja í fimmtu íbúðina sína,“ segir Ariana Katrín Katrínardóttir, en hún og maðurinn hennar eru á leigumarkaði.

Fyrir tæpum tveimur árum ákváðu þau að stefna að því að kaupa sér sína fyrstu eign og var tjáð í bankanum að þau þyrftu að safna sér fyrir útborgun sem væri að minnsta kosti tvær milljónir króna. „Við náðum alveg markmiðum okkar með því að spara og leggja fyrir en það er orðið að engu á svona stuttum tíma. Það er eiginlega bara hlegið að okkur með tvær milljónir því þær þurfa núna að vera að minnsta kosti sex.“

Að öðru leyti lítur greiðslumat fjölskyldunnar vel út, það er að segja að ekkert er því til fyrirstöðu að þau séu borgunarmenn láns. „Það er bara þessi útborgun. Einu svörin í bankanum eru spurningar um hvað pabbi og mamma eiga mikinn pening. Sem er fáránlegt því við erum á fertugsaldri. Svo er líka spurt um mögulegt lífeyrissjóðslán foreldra. Það er bara ekkert í stöðunni. Við erum bæði börn einstæðra mæðra sem eiga fleiri börn þannig að það þarf að gæta jafnræðis í því.“

Á leigumarkaði hefur fjölskyldunni bæði verið boðin langtímaleiga, sem svo hefur ekki gengið eftir. Fjölskyldan býr núna í Laugarneshverfinu en dóttirin er í leikskóla í Vesturbænum. „Við viljum færa hana um leikskóla en við þyrftum helst að vita hvar við erum að fara að vera. Hún var í leikskóla í einu hverfi og fótbolta í öðru svo hún næði að tengjast krökkunum þar en nú lítur út fyrir að þriðja hverfið bætist við,“ segir Ariana. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×