Erlent

Mikilvæg nótt fyrir Trump og Clinton

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump fór með sigur af hólmi í öllum þeim fimm ríkjum Bandaríkjanna sem héldu forvöl í gær um hvert næsta forsetaefni Repúblikana eigi að vera. Kosið var í ConnecticutDelawareMarylandPennsylvaníu og á Rhode Island. Í sigurræðu sinni sagði hann allar líkur nú vera orðnar á því að hann nái að tryggja sér útnefninguna.

Demókratar kusu einnig í sömu ríkjum í gær og þar sigraði Hillary Clinton í fjórum ríkjum. Keppinautur hennar, Bernie Sanders bar sigur úr býtum í Rhode Island. Fátt virðist nú geta stöðvað Clinton í að hljóta útnefninguna. Hún þarf að tryggja sér 2382 kjörmenn og er nú komin með 1622 á móti 1282 hjá Bernie Sanders. Við þá tölu bætast síðan svokallaðir ofurkjörmenn sem eru innanbúðarmenn í flokknum. Hún er talin eiga 519 atkvæði vís hjá þeim en Sanders aðeins 39.

Trump veittist að Clinton í sigurræðu sinni og sagði að eina forskot hennar væri að hún væri að reyna að verða fyrsti kvenkyns forseti Bandaríkjanna.

„Ef satt skal segja, ef Hillary Clinton væri karlmaður, tel ég að hún myndi ekki fá fimm prósent atkvæða,“ sagði Trump. Hann bætti svo við að besta væri að konum væri illa við Clinton.

Auk þess sagði hann að Ted Cruz og John Kasich ættu að stíga til hliðar svo hann gæti sameinað kjósendur repúblikana og að stuðningsmenn Bernie Sanders ættu að kjósa sig í forsetakosningunum. Nú væri eingöngu formsatriði að hljóta útnefningu Repúblikana.

Hillary Clinton svaraði Trump og sagði hann hafa ásakað sig um að reyna að spila út „konu spilinu“.

„Ef það að berjast fyrir réttindum kvenna í heilbrigðiskerfinu, launuðu fæðingarorlofi og launajafnræði er að spila út „konu spilinu“, þá er það rétt hjá honum.“

Hún reyndi einnig að brúa bilið á milli sín og stuðningsmanna Bernie Sanders. Clinton sagðist bera mikla virðingu fyrir þeim og Sanders sjálfum. Þá sérstaklega fyrir baráttu hans gegn fjárframlögum hagsmunaaðila til stjórnmálamanna og að minnka bilið á milli hæstu og lægstu launa.

Velgengni Trump í gær tryggði honum ekki útnefninguna en gerði hana mun líklegri. Þá dró verulega úr líkunum á því að Cruz og Kasich gætu komið í veg fyrir að hann nái 1.237 kjörmenn. Ef hann nær því ekki verður frambjóðandi flokksins ákveðinn á flokksþingi Repúblikana í júlí, eins og Cruz og Kasich vonast eftir.

Samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var fyrir AP fréttaveituna er ljóst að forval Repúblikana hefur sundrað flokknum. Í Pennsylvania sögðust fjórir af tíu kjósendum í forvalinu spenntir fyrir því að Trump yrði forseti en fjórðungur sagðist óttast það að Trump næði í Hvíta húsið.

Sex af tíu sögðu að forvalið hefði sundrað Repúblikanaflokknum, sem er þveröfugt viðhorf en hjá Demókrötum. Þar sögðu sjö af tíu að forvalið hefði gefið Demókrötum meiri orku og hleypt lífi í flokkinn.


Tengdar fréttir

Hillir undir sigur hjá Clinton og Trump

Bernie Sanders fékk verri útreið í New York en fyrirfram var talið og þykir nú vart eiga möguleika lengur gegn Clinton. Donald Trump þykir sömuleiðis orðinn nokkuð öruggur með útnefningu.

Leiða saman hesta sína gegn Trump

Ted Cruz og John Kasich gera það sem þeir geta til að koma í veg fyrir að Donald Trump verði forsetaefni Repúblikana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×