Viðskipti innlent

Mikill fjörkippur á fasteignamarkaðinum í borginni

Mikil aukning varð í fjölda þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Alls var þinglýst 114 samningum sem er 25 samningum meira en nemur meðaltalinu á viku undanfarna þrjá mánuði.

Veltan í vikunni nam 4,2 milljörðum króna sem er 1,5 milljarði kr. meiri veltan en nemur meðaltalinu á viku undanfara þrjá mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Af þessum 114 samningum voru 84 samningar um eignir í fjölbýli, 18 samningar um sérbýli og 12 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Meðalupphæð á samning var 36,8 milljónir króna sem er rúmlega 6 milljónum kr. hærri upphæð en nemur vikumeðaltalinu undanfarna þrjá mánuði.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×