Viðskipti innlent

Mikil hreyfing á hlutabréfum í Icelandair

ingvar haraldsson skrifar
Mikil hreyfing var á hlutafé Icelandair í dag.
Mikil hreyfing var á hlutafé Icelandair í dag. vísir/vilhelm
Velta viðskipta með hlutafé í Icelandair nam tæplega 1,8 milljörðum króna í Kauphöll Íslands í dag og hækkaði um 0,84 prósent og stendur nú í genginu 24 við lokun markaða.

Þá hækkaði gengi hlutabréfa í N1 hækkaði um 1,8 prósent en heildarvelta viðskipta nam 208 milljónum króna.

Gengi annarra félaga sem hreyfðist lækkaði í dag. Mesta verðlækkunin varð hjá Högum eða um 1,38 prósent  en velta þeirra viðskipta nam 279 milljónum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×