Viðskipti innlent

Mikil fjölgun farþega með Icelandair á milli ára

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Framboðsaukning á milli ára nam 19 prósentum.
Framboðsaukning á milli ára nam 19 prósentum. Vísir/Anton
Fleiri en 143 þúsund farþegar flugi með Icelandair í millilandaflugi í febrúar en það er 24 prósentum fleiri en í febrúar á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu.

Framboðsaukning á milli ára nam 19 prósentum og var sætanýtingin því betri en í sama mánuði í fyrra. Samkvæmt tilkynningunni var hún 77,7 prósent, eða 4,5 prósentustigum meiri en í fyrra. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×