Enski boltinn

Messan: Hvaðan kom allt þetta hár á Conte?

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hárið á Antonio Conte, knattspyrnustjóra Chelsea, barst í tal í Messunni í gærkvöldi.

Hinn 47 ára gamli Conte er með flotta greiðslu en það athygli Hjörvars Hafliðasonar að hárunum virðist hafa fjölgað með árunum. Þá er Conte ávallt fljótur að setja á sig derhúfu eða hettu þegar það fer að rigna.

„Manstu ekki eftir honum með skallablett,“ spurði Hjörvar Bjarna Guðjónsson.

„Það er leiðinlegt að rifja þetta upp. Þeir unnu 3-0, hann lítur glæsilega út og þú ferð að tala um að hann sé með skalla,“ sagði Bjarni og vísaði til sigurs Chelsea á Watford um helgina.

Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×