Erlent

Merkel vill frekar kosningar en minnihlutastjórn

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Angela Merkel er í snúinni stöðu.
Angela Merkel er í snúinni stöðu. Vísir/Getty
Angela Merkel, Þýskalandskanslari, segir að hún sé frekar til í nýjar kosningar heldur en að stjórna Þýskalandi í minnihlutastjórn. 

Stjórnarmyndunarviðræður fóru út um þúfur í landinu í fyrrakvöld eftir margra vikna tilraunir til að mynda starfhæfan meirihluta.

Sjá einnig: Ekki ósennilegt að kosið verði á ný í Þýskalandi

Merkel segist ekki sjá nein rök fyrir því að hún segi af sér kanslaraembættinu þrátt fyrir hina misheppnuðu tilraun til stjórnarmyndunar en Kristilegir Demókratar, flokkur Merkel, hafði verið í viðræðum við Græningja og Frjálslynda Demókrata, sem slitu viðræðunum í gærnótt.

Í umræðunni hefur verið að Merkel gæti myndað minnihlutastjórn með stuðningi Græningja og mögulega fljótandi stuðningi Sósíaldemókrata (SDP). Ekki er hins vegar mikil hefð fyrir minnihlutastjórnum í Þýskalandi og bera ummæli kanslarans með sér að þessi valkostur sé nú úr myndinni.

Tæpir tveir mánuðir eru frá þingkosningunum 24. september og í Þýskalandi er talaði um einhverja mestu stjórnmálakreppu í seinni tíð. Frank-Walter Steinmeier forseti Þýskalands var ómyrkur í máli þegar hann ávarpaði fjölmiðla í Berlín í gær.

Sjá einnig: Eiríkur Bergmann: Fordæmalaus staða í þýskum stjórnmálum

„Við stöndum frammi fyrir fordæmislausum aðstæðum sem hafa ekki sést í Þýskalandi í 70 ár. Nú reynir á stjórnmálaflokkana sem aldrei fyrr. Stjórnarmyndun er alltaf erfitt ferli baráttu og deilna en verkefnið að mynda stjórn er sennilega æðsta verkefni sem kjósendur fela flokkunum í hverju lýðræðisríki. Og þetta verkefni er enn fyrir hendi,“ sagði Steinmeier.


Tengdar fréttir

Ekki ósennilegt að kosið verði á ný í Þýskalandi

Í Þýskalandi blasir nú við erfiðasta stjórnarkreppa sem Þjóðverjar hafa staðið frammi fyrir í marga áratugi eftir að síðari viðræður Kristilegra demókrata, Frjálslynda flokksins og Græningja sigldu í strand rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi.

Stjórnarmyndunarviðræðum í Þýskalandi slitið

Óformlegum stjórnarmyndunarviðræðum í Þýskalandi á milli Kristilega demókrataflokksins, Græningja og Frjálslynda flokksins hefur verið slitið. Frjálslyndi flokkurinn sleit viðræðunum laust fyrir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×