Innlent

Matvælastofnun skoðar hvers vegna tólf hestar drukknuðu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Einn hestanna hífður upp úr vök.
Einn hestanna hífður upp úr vök. vísir/vilhelm
Dýralæknar á vegum Matvælastofnunar munu kanna aðstæður við Bessastaðatjörn og reyna að komast til botns í því hvers vegna tólf hestar drukknuðu þar nýlega.

Hrossin fundust á sunnudag með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir sólahringsleit. Skrokkarnir voru dregnir upp úr vök á ísnum með aðstoð þyrlu frá Reykjavík Helicopters í gær og urðaðir í urðunarstöð á Álfsnesi.

„Starfsmenn Matvælastofnunar munu skoða það hlutlægt og afla eigin upplýsinga um málið,“ segir Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun.

Sigríður segir það fágætan atburð að hópur hrossa drepist með þessum hætti, þótt það þekkist að einstakir hestar farist í skurði. „Vanalega ana þau ekki út í svona aðstæður,“ segir hún.

Sigríður tekur undir að þetta hafi verið þungur vetur fyrir útigangshross en þau þoli erfiðar aðstæður vel. „Það eru allavega 70 eða 80 þúsund hross á útigangi á Íslandi. Þau hafa mjög mörg mátt standa af sér vont veður. Þau gera það með glans alla jafna. En auðvitað þarf fólk að passa upp á aðstæður. Draga úr líkum á því að svona lagað gerist,“ segir hún.

Sigríður segir að eigandi beri ábyrgð á því að dýrin hafi nóg að éta þótt auðvitað geti tekið fyrir aðgang að fóðri á meðan stórviðri ganga yfir. Eigendur þurfa að undirbúa slíkar aðstæður með því að fóðra vel fyrir og eftir slík áhlaup.

Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Tólf hestar drukknuðu í Bessastaðatjörn

Svo virðist sem hestarnir hafi farið út á ísinn og hann látið undan. Einar Bollason hjá Íshestum segir málið skelfilegt og að starfsmenn séu allir í losti vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×