Viðskipti innlent

Marorka flytur í nýtt húsnæði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þorleifur J. Guðjónsson, deildarstjóri tölvudeildar Fjölsmiðjunnar tók vel á móti Steindóri Emil Sigurðssyni , framleiðslustjóra Marorku sem afhenti búnaðinn.
Þorleifur J. Guðjónsson, deildarstjóri tölvudeildar Fjölsmiðjunnar tók vel á móti Steindóri Emil Sigurðssyni , framleiðslustjóra Marorku sem afhenti búnaðinn.
Marorka flutti höfuðstöðvar sínar fyrr í mánuðinum í Borgartún en Marorka hafði ekki flutt sig um set frá því fyrirtækið var stofnað árið 2002 og hóf starfsemi í skrifstofum VSÓ í Borgartúni 20.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matorku. Á þessum 13 árum hefur Marorka margfaldast að stærð og starfsmannafjölda og árið 2014 markaði söguleg tímamót í vexti fyrirtækisins, sala náði milljarði íslenskra króna.

Í tilkynningunni segir að stefnt sé að áframhaldandi hröðum vexti á þessu ári.

Samhliða flutningunum var ráðist í endurnýjun á hluta tölvubúnaðar fyrirtækisins og í kjölfarið stóðu út af borðinu um það bil tveir rúmmetrar af tölvubúnaði og -íhlutum.

Í ljósi umhverfisstefnu fyrirtækisins lá beinast við að koma tækjunum fyrir þar sem þau héldu áfram að nýtast vel og því var Fjölsmiðjunni í Kópavogi færður tækjabúnaðurinn að gjöf.

Fjölsmiðjan er vinnusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára þar sem tækifæri gefast til þjálfunar fyrir almennan vinnumarkað eða áframhaldandi nám. Að rekstri Fjölsmiðjunnar standa Rauði kross Íslands, Félagsmálaráðuneytið, Vinnumálastofnun og sveitafélögin á höfuðborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×