Viðskipti erlent

Markaður fyrir snjallforrit virðist mettaður

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Notkun samskiptaforrita jókst á síðasta ári.
Notkun samskiptaforrita jókst á síðasta ári. Nordicphotos/AFP
Eftir mikinn vöxt á snjallforritamarkaði virðist sem markaðurinn sé mettaður. Þetta segir í greiningu tæknisíðunnar Flurry.

Niðurstöður greiningarinnar eru meðal annars þær að notkun frétta- og leikjaforrita hafi minnkað. Heildar­aukning í notkun snjallforrita hafi þó verið ellefu prósent.

„Undanfarin ár höfum við séð tiltölulega jafnan vöxt milli flokka. Í ár er annað uppi á teningnum. Vöxtur í einum flokki er farinn að þýða hnignun í öðrum,“ segir í greiningunni.

Notkun samfélagsmiðla og samskiptaforrita jókst mest, alls um 44 prósent. Hins vegar minnkaði notkun forrita sem flokkast til sérsniðinna forrita um 46 prósent.

Flurry fylgdist með 940 þúsund snjallforritum á tveimur milljörðum tækja. Haldin var skrá yfir alls 3,2 billjónir atvika þar sem forritin voru opnuð og var stuðst við þær opnanir í greiningunni. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×