Viðskipti innlent

Markaðsmisnotkunarmálið: "Við skulum mynda verðið eins og fyrri daginn”

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ingólfur Helgason í héraðsdómi fyrr í vikunni.
Ingólfur Helgason í héraðsdómi fyrr í vikunni. vísir/gva
Björn Þorvaldsson, saksóknari, hefur borið fjölda gagna undir Ingólf Helgason, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, fyrir dómi í dag. Ingólfur er einn af ákærðu í umfangsmiklu markaðsmisnotkunarmáli bankans á 11 mánaða tímabili fyrir hrun.

Áður en Ingólfur gaf skýrslu í dag höfðu þrír starfsmenn eigin viðskipta Kaupþings, sem einnig eru ákærðir vegna málsins, komið fyrir dóminn. Þá vöktu ýmis ummæli sem Ingólfur lét falla í símtölum við þá athygli og voru þau borin undir fyrrum forstjórann í dag.

„Við ráðum ekki verðinu á svona degi”

Í símtali frá því í desember 2007 milli Ingólfs og Birnis Sæs Björnssonar, sem var verðbréfasali hjá eigin viðskiptum, ræða þeir um högun tilboða eigin viðskipta í hlutabréf Kaupþings. Segir Ingólfur meðal annars að þeir ráði „ekki verðinu á svona degi.” Saksóknari spurði hvað hann ætti við með þessum orðum.

“Þetta er greinilega óvenjulegur dagur og miklar lækkanir á markaði. Það er greinilega mikil óvissa með hvar við eigum að staðsetja tilboðin en það er ekkert hægt að ráða of mikið í þetta orðalag. Ég er bara að bakka upp starfsmenn eigin viðskipta í sínum viðskiptum,” svaraði Ingólfur.

„Við skulum mynda verðið eins og fyrri daginn”

Spilaður var hluti úr símtali milli Ingólfs og Einars Pálma Sigmundssonar, forstöðumanns eigin viðskipta Kaupþings, frá því í lok janúar. Þar segir hann við Einar að þeir skuli „mynda verðið eins og fyrri daginn.”

Aðspurður um þetta fyrir dómi sagði Ingólfur:

„Við erum bara að tala um að halda áfram eins og venjulega á markaðnum. Það er greinilega mikið að gerast, miklar verðbreytingar og mér fannst mikilvægt að við myndum haga okkur með svipuðum hætti og alltaf.”

„Æi, þetta er bara tungutak”

Í janúar 2008 ræðir Ingólfur svo við Pétur Kristin Guðmarsson, verðbréfasala hjá eigin viðskiptum, sem sá um viðskipti Kaupþings með eigin bréf, aðallega í sænsku kauphöllinni.

Í símtalinu segir Ingólfur við Pétur að hann eigi að vera með „vegg og engin sölutilboð.” Þegar saksóknari spurði hvað hann ætti við með þessu sagði hann að þeir ætluðu greinilega að vera „firm” þennan dag. Áður hafði komið fram að „firm” þýddi að koma sterkur inn á markaðinn með kauptilboð.

Saksóknari gaf lítið fyrir þetta svar og sagði að það hlyti að vera einhver munur á „vegg” og því að vera „firm”.

„Æi, þetta er bara tungutak. Menn eru bara að ákveða einhvern punkt þar sem þeir vilja eignast bréf og kaupa bréfin þar.”

Í sama símtali segir Ingólfur við Pétur að koma “aftur inn á tikkunum og ekkert múður.” Sagði hann að þar væri hann bara að tala um að halda áfram á markaðnum.

Getur vel verið að „bankadruslan” sé Kaupþing

Ingólfur var síðan spurður út í símtal sem hann átti við Birni Sæ þar sem hann bað verðbréfasalann að „tutla bankadruslunni yfir par.” Birnir Sær sagðist við skýrslutöku ekki muna hvaða banki hefði fengið viðurnefnið “bankadruslan.”

„Sumir brandarar endast ágætlega og aðrir ekki. Það getur vel verið að við séum að tala þarna um Kaupþing,” sagði Ingólfur spurður út í þessi ummæli sín.

Þá var hann jafnframt spurður út í símtal milli Einars Pálma og Birnis í lok febrúar 2008 þar sem sá fyrrnefndi sagði bankann hafa staðið frammi fyrir tveimur vondum kostum, og vitnaði þá í Ingólf. Vondu kostirnir voru þeir „að láta félagið sunka” eða „að halda genginu sæmilegu.”

Ingólfur sagðist ekki kannast við að hafa sett hlutina fram með þessum hætti í samtali við Einar Pálma.

„Kjarninn í þessu er að við höguðum okkur alltaf eins á markaði. Það var engin breyting á þeirri hegðun hvað mig varðar síðan 2006.”


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×