Glamour

Mariah Carey opinberar samband sitt við dansarann sinn

Ritstjórn skrifar
Mariah naut sín á ströndinni með nýja kærastanum.
Mariah naut sín á ströndinni með nýja kærastanum. Mynd/Getty
Það er rétt kominn mánuður frá því að Mariah Carey og Ástralinn James Parker slitu trúlofun sinni. Miklar vangaveltur voru um af hverju sambandsslitin urðu en ein sögusagnanna snérist um að Mariah væri að halda við einn af dönsurunum sínum, Bryan Tanaka.

Nú hefur Mariah svo sannarlega staðfest það að hún og Bryan séu saman. Það sást til þeirra á strönd um helgina þar sem þau sjást skemmta sér vel. Að sjálfsögðu var okkar kona með stór sólgleraugu og Louis Vuitton klút um mittið við svartan sundbol sem sýndi línurnar vel. 





Nýja parið að njóta.Glamour/Skjáskot





×